Bergmál - 01.09.1951, Side 20

Bergmál - 01.09.1951, Side 20
HEILABROT: 1. Kaupfélagsstjóri einn á Norður- landi var á ferð í bíl ásamt nokkrum bændum. Kom þeim þá saman um að reyna með sér, hver gæti sagt stærsta lygi. Kaupfélagsstjórinn sagðist skyldi borga sigurvegaranum hundraðkall, og stakk jafnframt upp á því, að einn bóndinn, sem við skulum kalla Bjarna, skyldi byrja, því að hann fékk orð fyrir að gefa vellygna-Bjarna lítið eftir með sögum sínum. — Bjarni sagði þá þrjú orð, sem urðu til þess að hann fékk verðlaunin greidd samstundis, án frekari samkeppni. Hvað sagði Bjarni? 2. Hver er það, sem gengur að ánni með 25 hausa, en drekkur þó aðeins með einum hausnum? 3. Hvað er það, sem allir vilja öðl- ast, en enginn vill* þó gefa grænan eyri fyrir? 4. Hver er það, sem fer þversum gegnum kirkjudyrnar? 5. Hver er það, sem aldrei gengur um neinar dyr, án þess að beygja sig? 6. Hver er það, sem er vel tenntur, en getur þó hvorki bitið eða tuggið? 7. Hvað er sameiginlegt með kossi og slúðursögu? 8. Hvaða tið elskar hungraður mað- ur mest? 9. Hvað kemur á eftir eilífðinni? 10. Hversu oft er hægt að taka eitt eggi úr 100 eggja bunka? 11. Það var einu sinni — svona byrja allar góðar sögur — svolítil kanína. Hún bjó langt úti á akri, og þar var fjöldinn allur af öðrum kanínum. Einu sinni ákvað hún að fara alein í gönguferð. Hún skreið út úr holunni sinni, fór í gegnum litlu limgirðing- una, yfir plægðan akur, og yfir brú, sem lá yfir á, yfir engi með heyi á, gegnum gat í stórri limgirðingu og þá var hún allt í einu komin inn á stóran akur þar sem allt var fullt af kálhaus- um. Eins og þú veizt, þykir kanínum kálhausar mesta lostæti, en þessi litla kanína, var ekki gráðug kanína, og ákvað því að snúa við strax og sækja alla vini sína. Hún fór því til baka, gegnum gatið í stóru limgirðingunni, yfir engið með heyinu á, yfir brúna, sem lá yfir ána, yfir plægða akurinn, gegnum litlu limgirðinguna, og svo inn í holuna sína. Þessi litla kanína sagði öllum vinum sínum frá þessu, og áður en klukkustund var liðin, voru allar kanínurnar komnar af ;tað út að akrinum með kálhausunum. Þær fóru yfir plægða akurinn, og yfir brúna, sem lá yfir ána, yfir engið með heyinu á, gegnum gatið á stóru lim- girðingunni og út á akurinn með kál- hausunum. Að nokkrum tíma liðnum, var ekki einn einasti kálhaus eftir á akrinum, svo að kanínurnar lögðu af 18

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.