Bergmál - 01.09.1951, Blaðsíða 38
Bergmál -------------------
Ég reyndi að finna forstjór-
ann til þess að segja honum frá
breytingunnþ en hann var sýni-
lega einhvers staðar úti að fá
sér göngu. Hann var ekki kom-
inn kl. kortér fyrir 3, svo að ég
varð að leggja af stað til leik-
hússins án þess að hitta hann.
Maðurinn við dyrnar varð undr •
andi að sjá mig þarna í stað for-
stjórans, en ég útskýrði fy.”ir
honum, að ég væri staðgengill
hans, og svo labbaði ég inn á
leiksviðið undir dynjandi fagn-
aðarlátum áhorfenda. En í stað
ungbarna, var þarna stillt upp
tólf ungum fegurðardísum á
sundbolum. Ég áttaði mig ekki
á því á stundinni, hvernig á
þessu stóð, en fór svo að virða
stúlkurnar fyrir mér með gaum-
gæfni og lofaði sjálfum mér því,
að ég skyldi ekki verða forstjór-
anum til skammar.
Hann var skrambi súr við
mig, þegar ég kom á gistihúsið
á eftir. Og það kom í ljós, að
hann hafði átt að dæma á milli
barnanna kl. 3, en ungu stúlkn-
anna kl. hálf-fimm. Og þar sem
ég fannst hvergi kl. 3, þá hafði
hann sjálfur neyðzt til að dæma
barnasamkeppnina.
Hann var ekkert nema geð-
vonzkan allt kvöldið og virtist
--------------- September
alls ekkert hafa á móti því,
þegar ég stakk upp á því, að
fara heim á sunnudagsmorgun-
inn. Á héimleiðinni var ég alltaf
að hugsa um, hvort ég ætti að
segja Maríu frá óhappinu. Auð-
vitað gat svo sem verið, að hún
sæi broslegu hliðina á þessu, en
einhvern veginn fann ég samt á
mér, að hún myndi ekki verða
sérlega glöð. Þess vegna réð ég
af að segja henni, að ég hefði
dæmt barnasamkeppnina, eins
og ætlunin hafði verið.
„Hvernig gekk þér með börn-
in?“ var það fyrsta, sem hún
sagði, þegar ég kom inn.
„Ágætlega“, sagði ég. „Ég stóð
mig eins og hetja og til að þókn-
ast forstjóranum mínum, þá
kyssti ég þau sem fengu fyrstu,
önnur og þriðju verðlaun.“
Hún fletti sundur sunnudags-
blaðinu fyrir framan nefið á
mér. Myndin af mér, þar sem
ég stóð brosandi hjá þremur
fegurðarstjörnum í sundbolum,
var alveg ágæt; en ef dæma má
af því, sem María sagði næstu
tíu mínútur, þá virtist hún ekki
vera sérstaklega hrifin. —
EncLir.
-------o-----
36