Bergmál - 01.09.1951, Blaðsíða 34

Bergmál - 01.09.1951, Blaðsíða 34
Bergmál ---------------------- JOHN AGAR Blaðagrein. Amerísku blöðin segja um John Agar, að annaðhvort sé hann mesti vandræða-gepill, sem til sé í Holly- wood eða þá, að kvikmyndafélagið, sem hann er ráðinn hjá, hafi gengið af göflunum í auglýsingastarfsemi sinni, varðandi þennan, annars vin- sæla leikara, því að undanfarið hafa birzt ótal kviksögur um drykkjuskap hans og árekstra við lögregluna. John Agar er hár og grannur, kom- inn fast að þrítugu. Hann lenti fyrst í klandri við lögregluna stuttu eftir að Shirley Temple'íékk skilnað frá hon- umb á þeim forsendum, að hann væri alltaf meira og minna drukkinn. Þá var hann handtekinn fyrir að vera drukkinn við stýrið, og átti að setja hann í fangelsi, en var þó sleppt í það skipti gegn 150 dollara lausnarfé, en dagblöðin birtu fregnina á forsíð- um, um þvera og endilanga Ameríku, og þrátt fyrir það að eftir niðurstöð- um blóðrannsókna, við þetta tækifæri, væri hann algjörlega sýknaður af ákærunni, varð þessi kviksaga til þess að almenningur var þegar búinn að mynda sér ákveðnar skoðanir um fylli- byttuna John Agar. Það eru forsíðu- fréttir blaðanna sem gilda, og þó að þær séu bornar til baka síðar, þá hefir það ekkert að segja. John Agar er i raun og veru ekki búinn að átta sig til fulls á Hollywood, svo margt hefir honum borið þar að höndum frá því hann fyrst kom þang- að og giftist Shirley. Hann þjáist mjög _________________ SEPTEMBER af minnimáttarkennd, og sumir halda því fram að hann hafi aldrei og muni aldrei geta sætt sig við það til fulls að vera kvikmyndaleikari, að minnsta kosti er óhætt að fullyrða það, að hon- um veitist þessi atvinnugrein erfið, því að hann er að eðlisfari hlédrægur, og iðulega bogar af honum svitinn, þegar hann á að sýna einhver sérstæð geð- hrif á leiksviðinu. Blaðamenn bölva honum mikið, og segja að það sé auðveldara að toga upplýsingar út úr vaxmynd heldur en honum, og jafnvel Gary Cooper, sem hingað til hefir þó þótt fremur fámáll við blaðamenn, sé barnaleikur, saman- borið við John Agar. Einn af meðleikurum hans í kvik- myndinni — Iwo Jima — segir þetta: „Það má ef til vill segja um John Agar, að honum þyki óþarflega gott í staupinu, en hann er mjög geðugur ná- ungi. Hann myndi aldrei gera nokk- urri flugu mein, þó líf hans lægi við. Hann er hjálpsamur og alúðlegur við alla og reynir aldrei að trana sér fram á kostnað samstarfsmannanna hér, eins og vill þó brenna við með ýmsa. Hann er sannur heiðursmaður, vel upp alinn og góðhj artaður. Ég veit að hann hefir verið hand- tekinn, oftar en einu sinni, fyrir ógæti- legan akstur, og að dagblöðin hafa verið barmafull af slúðursögum um hann, og það svo mjög, að mig skyldi ekki undra, þótt honum fyndist hann vera ofsóttur, en ég veit líka að hann kemst yfir þetta allt saman og jafnar sig. Og þegar hann hefir jafnað sig, þá megið þið vera viss um að hann verð- ur fyrr en varir, mesti kvikmyndaleik- ari, sem þessi borg (Hollywood) hefir 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bergmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.