Bergmál - 01.09.1951, Qupperneq 28
Konan mín á margar frænkur, sem allar eru
hver annarri herfilegri, nema ein, sem kom,
sigraði og hvarf.
Anna beitir brögðum
Smásaga eftir M, Moore.
„Heyrðu, Anna,“ sagði Einar,
„ég dauðsé eftir því, að við
skyldum taka þennan bölvaðan
sumarbústað á leigu nú, eins og
undanfarin sumur, fyrst að við
þurfum alltaf að byrja að kíta,
jafnskjótt og við flytjum inn!“
„Það er þér sjálfum að kenna,
að við erum farin að kíta,“ svar-
aði kona hans, fýlulega. „Þú ert
svo sjálfselskur. Samstundis og
þú heyrir það, að ég hafi boðið
Betty frænku að koma og dvelja
hér hjá okkur, rýkur þú upp til
handa og fóta og ákveður í
skyndi að bjóða hingað einnig
þessum Charlie, og þó veiztu vel
að við getum ekki hýst nema
einn gest.“
„Það er mesta fjarstæða að ég
hafi — ákveðið í skyndi — að
bjóða Charlie að koma hingað,“
mótmælti Einar. „Jafnskjótt og
við höfðum ákveðið að taka
þennan sumarbústað hér við
Fishcliff á leigu, þá sagði ég
Charlie frá því og gat þess um
leið, að ég myndi hafa ánægju
af því, að hann kæmi til okkar.“
„Og viltu gjöra svo vel og út-
skýra fyrir mér, hvers vegna þú
bauðst einmitt þessum Charlie?11
„Fyrst og fremst af því að við
Charlie höfum báðir mjög gam-
an af að fara saman á veiðar,“
sagði Einar „og í öðru lagi vegna
þess að hann er einn af fram-
kvæmdarstjórum í Boon &
Blasting hf. og lætur senda alla
þá verkstæðisvinnu, sem fyrir-
tækið þarf á að halda, beina
leið á verkstæðið til mín, svo
að það er stórt fjárhagsatriði
fyrir mig að halda vináttu við
hann.“
„Því varstu ekki búinn að
segja mér þetta fyrr?,“ spurði
Anna, frekjulega.
26