Bergmál - 01.09.1951, Page 27

Bergmál - 01.09.1951, Page 27
Gaman og alvara Sá er munurinn: Burnett Hershey, rithöfundur og fréttaritari í stríðinu, segir sögu af því þegar sendinefnd frá amerísku verkalýðsfélagi heimsótti Skoda-bíla- smiðjurnar, eftir að Tékkóslóvakía komst undir stjórn Moskvu. Ameríku- mennirnir spurðu: „Hver á þessa verksmiðju?" „Við verkamennirnir eigum hana,“ svöruðu leiðsögumennirnir. „Hver á vélarnar í þessari verk- smiðju?" spurðu Ameríkanarnir. „Við verkamennirnir eigum þær,“ svöruðu Tékkarnir. „Hver fær hagnaðinn?" spurðu Ame- ríkanarnir. „Við verkamennirnir fáum hann,“ var svarið. Þá sáu Ameríkanarnir þrjá bíla, sem stóðu fyrir utan verksmiðjima, og spurðu hver ætti þá. „Eigandi eins þeirra er hervarna- ráðunautur þessa héraðs, annan bílinn á formaður verkalýðsfélagsins á staðn- um, og þriðja bílinn á stjórnarfulltrúi frá Moskvu, sem er hér í heimsókn," sögðu tékknesku leiðsögumennirnir við amerísku sendinefndina. Síðar heimsótti svo sendinefnd frá Skodaverksmiðjunum Ameríku, til að kynna sér iðnað og tækni þar. Ame- rískur verkalýðsleiðtogi sýndi Tékk- unum Ford-verksmiðjurnar. „Hver á þessa verksmiðju?" spurðu sendimennirnir. „Herra Ford á hana," svaraði Ame- ríkaninn. „En hver á vélarnar í verksmiðj- unni?“ spurðu gestirnir, og fengu það svar, að Ford ætti þær einnig. „Hver fær hagnaðinn?," spurði þá einn Skoda-maðurinn. „Herra Ford fær hagnaðinn," svar- aði Ameríkaninn. Þá sáu Tékkarnir þrjátíu þúsund bíla, á bílastæði fyrir utan verksmiðj- una og spurðu: „Hver á alla þessa bíla?" Ameríkaninn glotti, og svaraði síðan: „Við verkamennirnir eigum þá.“ Hæversk stúlka eltir ekki karlmann. Músagildran eltir heldur ekki músina. Maður nokkur var spurður að því, hvað hann hefði gert, áður en hann gifti sig. „Allt, sem ég hafði löngun til,“ var svarið. Framleiðslan- og eftirspumin: Maður nokkur fór að framleiða vöru, sem talin var til lífsnauðsynja og menn þörfnuðust. Hann rétt hafði ofan af fyrir sér. En svo var annar, sem fór að framleiða vöru, sem enginn hafði sér- staka þörf fyrir, en sem fólkið sóttist þó eftir. Hann varð brátt stórefnaður. Kurteisi kostar þig aldrei neitt — nema sætið þitt í strætisvagninum.

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.