Bergmál - 01.09.1951, Page 43

Bergmál - 01.09.1951, Page 43
1951 ------------------------ ánægðir á svipinn, þá var hún vonsvikin og leið. Það, sem hún hafði ekki heyrt, var, að það eru til óendanlega margar aðferðir við að hlusta og slá gullhamra. Ef það er ekki gert af heilum hug, þá er alveg eins vænlegt til árangurs að hrópa manninn niður, kalla hann bölvaðan asna og láta þar við sitja. Þessa stúlku vantaði nærgætni, eða með öðrum orð- um: hún var of eigingjörn. Hún gat látið augun verða kringlótt af undrun, hún gat hlegið alltaf þegar við átti og sagt allra fal- iegustu orð, en karlmennirnir voru ekki uppnæmir. Þeir sáu, að hún var ekki að hugsa um þá, heldur það, hvernig hún sjálf liti út í þeirra augum. V. Hin ráðdeildarsama stúlka. Hrædd við lífið og hrædd við sjálfa sig, hamast Lovísa og vinnur eftir fyrirfram gerðri áætlun eins og strætisvagn. Á hverjum einasta degi vinnur hún sömu verkin með sömu handtökunum .Hver smáhlutur í íbúðinni hennar er ætíð á sín- um stað. Einu sinni var hún hrifin af blaðamanni, eða svo hélt hún sjálf. Einu sinni bauð hann henni inn til sín og þau fengu sér ------------------ Bergmál snaps. Hann hafði staðið í ströngu þennan dag og langaði til að létta áhyggjum daglega lífsins af sér. En hún sagði: „Þetta get ég alls ekki þolað“ — og hún fór að laga til í herberg- inu hans og hann staulaðist á eftir henni. Svo settist hann aftur og horfði vonsvikinn í gaupnir sér. Hann bauð henni aldrei oftar inn. Hún hefir oft síðan boðið ungum mönnum í sína eigin íbúð, en enginn þeirra hefir orðið þaul- sætinn hjá henni. Og hún stend- ur þeim alltaf fyrir hugskots- sjónum sem stúlka, sem sífellt er á ferðinni með öskubakka til að hvolfa úr þeim. VI. Hin áliugalausa stúlka. í fyrstu ástarhrotunni heyrum við sjaldnast það sem sagt er, við heyrum aðeins hljóminn af orðunum og hann lætur okkur blíðlega í eyrum eins og fögur tónlist. En seinna byrjum við að heyra orðaskil, og þá — ham- ingjan hjálpi þeirri stúlku, sem alltaf veður elginn um einskis- verða hluti . Kossar geta verið ágætir fyrsta sprettinn og komið í stað orða — en að lokum fer einnig af þeim mesta nýjabrumið. Jafn- vel áköfustu elskhugar verða að 41

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.