Bergmál - 01.09.1951, Side 45
1951 ---------------------------
vera allt of kisuleg. Hér gildir
sama reglan og áður — að rata
hinn gullna meðalveg milli öfg-
anna. Þeir virða konur, sem eru
mótaðar í framkomu, hæversk-
ar, trúar og kvenlegar. Og gagn-
kvæm virðing er undirstaða
varanlegrar ástar.
Hver sú kona, sem finnur lýs-
ingu á sjálfri sér hér á undan,
ætti að ganga afsíðis á eintal
við sjálfa sig. En hvernig á hún
að breyta til? Það eitt, að viður-
kenna sínar eigin yfirsjónir, er
spor í rétta átt. Engin af þeim
konum, sem ég hefi minnzt á,
hafði hugmynd um sínar eigin
ávirðingar. Þær vissu, að eitt-
hvað var athugavert — en það
var líka allt og sumt. En ef þær
------------------ Bergmál
hefðu getað séð sig sjálfar með
annarra augum, þá væri mikið
fengið,. og þá held ég að þær
gætu bætt ráð sitt.
Margur maðurinn hefir snið-
gengið gott konuefni, þegar
hann gekk úr vegi fyrir þessum
tilvonandi piparmeyjum. Og það
er gengið fram hjá flestum
þeirra.
Það er margt gott konuefnið,
sem horfir með beiskju í huga
á blíðuatlot elskenda og veit
ekki, hvenær vitjunartíminn
rennur upp. Skelfdar og ráð-
villtar standa þær með útrétta
hönd og bíða þess, að við þeim
sé tekið af alúð og skilningi.
Endir.
Ég óskaði konu nokkurri til ham-
ingju á silfurbrúðkaupsdegi hennar
fyrir það að hafa haldið út að vera
gift sama manninum í 25 ár. „Oh,
hann er nú ekki sami maðurinn og
þegar ég klófesti hann,“ svaraði hún.
Tré: Hlutur, sem stendur kyrr í
margar aldir, þangað til hann allt í
einu stekkur í veg fyrir bíl, þar sem
kona situr við stýrið:
Sálfræðingur er maður, sem horfir
á hina karlmennina, þegar falleg, ung
stúlka kemur inn.
Hagfræðingur er maður, sem veit í
dag, hvers vegna það, sem hann spáði
í gær, kom ekki fram í dag.
Kvartett: Fjórir menn, þar sem
hverjum um sig finnst hinir þrír
syngja illa.
Albert Edward segir: Ég vorkenni
þeim manni, sem aldrei hefir neitað
sér um máltíð til þess að geta keypt
sér lítið ljóðakver, aðgöngumiða að
hljómleikum, lítinn skrautgrip, eða
jafnvel snotran hatt handa konunni
sinni.
43