Bergmál - 01.09.1951, Síða 47

Bergmál - 01.09.1951, Síða 47
1951 Bergmál í eyru sjálís sín og annarra: Ég hefi aldrei elskað fyrr. Ég gifti mig ekki af ást. Skyldi ég ekki eiga kollgátuna, að eins sé farið um yður? Mér er nær að halda, að þér mynduð ekki lengi una því lífi, sem hinn nýi ókunni, kynni að geta boðið yður. Þér eruð ekki einu sinni viss um, að hann elski yður, hvað þá meira, þó að þér séuð ekki í neinum vafa um sjálfa yður. Hvernig væri nú, að lofa hjarta yðar að tala máli mannsins yðar, hans sem þér þekkið og hafið verið ánægð með, enda þótt þér séuð orðin leið á honum og elskið hann ekki vitundar ögn? Hlustið stundarkorn á raust hjarta yðar. Sjáum svo hvað setur. ÞJÓFURINN Sönn smásaga. „Þetta er andstyggilegt mál- verk, ég neita að borga það,“ sagði auðkýfingurinn Elemer Kelen, um leið og hann sneri til dyranna og bjóst til að ganga út úr vinnustofu hins fátæka, ung- verska listmálara, Arpad Sebesy. Þessum unga listamanni flugu í hug allar þær mörgu vikur, sem hann hafði eytt í að mála þetta listaverk, auk hinna fimm hundruð pengös, sem hann hafði átt að fá fyrir það, og nú voru tapaðir. Hann minntist þess með beiskju í huga, að auðkýfingur- inn hafði ekki þótzt hafa tíma til að sitja fyrir nema þrjá dag- parta, svo að málverkið hafði í rauninni að mestu verið málað eftir minni. Og þó líktist það fyrirmyndinni, auðkýfingnum furðanlega vel. „Bíðið andartak,“ kallaði Se- besy. „Viljið þér gjöra svo vel og gefa mér það skriflegt að þér neitið að greiða fyrir málverkið, af því að það líkist yður ekki vitund?“ Kelen varð glaður við að 45

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.