Bergmál - 01.09.1951, Side 57

Bergmál - 01.09.1951, Side 57
1951 ____________________________________________ B E R G M Á L veizlurnar í heimavistarskólanum. Höfðuð þið nokkurn tíma miðnætur-veizlur á hælinu?“ Hún brosti raunalega. „Við höfðum varla nokkurn tíma nokkuð til að geta haldið veizlu. Og þó höfðum við það einu sinni, þegar ein- hver hafði sent einni stelpunni köku-bauk.“ Skyndilega sagði hann, um leið og hann gekk inn í- her- bergið: „Ég vildi að ég hefði séð yður oftar á þeim árum. Ég vildi að ég hefði gert meira fyrir yður.“ „Þér gerðuð mikið, doktor Brad,“ sagði hún í flýti. Hann hristi höfuðið. „Ég gerði það ekki. Ég var ungur og kjánalega bundinn við mín eigin málefni. Ég kom ekki nærri því eins oft, og ég ætti að hafa gert, og færði yður ekki heldur þá hluti, sem ég veit nú, að ég hefði haft gaman af að færa yður. Það er eitt hið sorglegasta í þessu lífi, að iðrast þess, sem maður gerði ekki.“ „Hafið ekki áhyggjur, mín vegna.“ Hún kveikti á lamp- anum hjá rafmagnsplötunni. „Ég var glöð yfir því, að þér skylduð yfirleitt koma.“ Hún kveikti á rafmagnsplötunni, en Bob horfði í kring- um sig. „En hvað þetta er snoturt herbergi," hugsaði hann, „svo vistlegt og þægilegt.“ Húsgögnin fábrotin og viðkunnan- leg, og litirnir í góðu samræmi. Það var bókahilla í öðrum enda herbergisins, og hann varð undrandi yfir því að hún skyldi eiga svo mikið af bókum. Hann hafði ekki hugsað sér hana sem bókaorm. Hann gekk yfir að hillunni og skoðaði þær nánar, og tók eitt og eitt bindi út úr. Fáeinar sígildar bækur, augsýni- lega keyptar hjá ódýrari verzlunum, annars mest-megnis ljóðabækur. Hann hugsaði um það, að Marjorie hefði reyndar upp á síðkastið fengið einhvern áhuga fyrir ljóðum, og héldi því oft fram í kvöldveizlum, að fyrsta ljóðskáldið, sem væri 55

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.