Bergmál - 01.09.1951, Side 62

Bergmál - 01.09.1951, Side 62
Bergmál September fyrr en okur hefði tekizt að bjarga lífi vesalings manns- ins.“ „Eða réttara sagt, hún vildi ekki fara á undan þér!“ greip hún fram í kuldalega. „Og hún fékk sína umbun. Þú fórst heim með henni, og hún framreiddi kakaó handa þér. En rómantískt. Og auðvitað var þetta allt í mesta sakleysi, var það ekki?“ Rödd hennar var æst og kald- hæðin. „Þegiðu, Marjorie,“ hrópaði hann, beygði sig niður að henni, tók um axlir hennar og hristi hana hörkulega. Hann hafði aldrei misst stjórn á sjálfum sér, svipað þessu, fyrr. Hann fann það að hann hafði gengið of langt. Sennilega var þreytu hans um að kenna. „Stundum liggur mér við að hata þig, Marjorie," sagði hann. „Mér finnst þú stundum verðskulda megnustu fyrir- litningu.“ „Af því að ég hef mannlegar tilfinningar,11 hrópaði hún. „Af því að ég sit ekki eins og steingervingur, svipað og þín hjartkæra vinkona, fröken Norris. Að minnsta kosti er ég nógu kvenleg í mér, til að segja álit mitt og til að láta í Ijósi þegar ég er afbrýðissöm.“ „Þú ert geðbiluð," sagði hann. „Þú hefur enga ástæðu til að vera afbrýðissöm. Allt þetta er tómur hugarburður þinn.“ Hann hætti eins skyndilega að hrista hana, eins og hann hafði byrjað. Hann strauk hendinni þreytulega yfir ennið, og virtist óstyrkur á fótunum. „Drottinn minn, hvað ég er þreyttur,“ muldraði hann. „Við skulum ekki tala meira í nótt. Ég bið afsökunar, ef ég hef meitt þig, Mar- jorie.“ ,.Þú hefir meitt mig.“ Hún nuddaði aðra öxlina, þar sem fingraför hans sáust greinilega á hvítu hörundinu. „Góða nótt,“ sagði hann yfir öxl sér, um leið og hann fór. Hann reikaði eins og drukkinn maður. Hann var svo þreyttur, að honum fannst helzt, að hann myndi aldrei komast fram að dyrunum. Hann blygðaðist sín fyrir, 60

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.