Bændablaðið - 13.06.2024, Síða 14

Bændablaðið - 13.06.2024, Síða 14
14 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 Soffía Sveinsdóttir tekur við embætti skólameistara Fjölbrauta- skóla Suðurlands á Selfossi þann 1. ágúst næstkomandi. „Ég varð auðvitað kampakát en jafnframt auðmjúk og þakklát fyrir traust ráðherra. Umsækjendur voru fáir og því átti ég ágætis möguleika á stöðunni líkt og hinir en reyndi að hugsa lítið um það,“ segir Soffía aðspurð um viðbrögð hennar þegar hún fékk símtalið um ráðninguna. Sex sóttu um starfið. „Ég er fyrrverandi nemandi skólans og þykir mjög vænt um skólann. Ég stefndi alltaf að stjórnunarstarfi í Menntaskólanum í Hamrahlíð (MH) þegar ég vann þar en síðan flutti ég á Selfoss og söðlaði um með því að hefja störf hjá Matvælastofnun. Þegar ég sá stöðu skólameistara auglýsta þá ákvað ég að láta slag standa, enda tækifæri sem kemur kannski einu sinni á starfsævinni,“ bætir Soffía við en skipunin nær til fimm ára. Soffía fæddist í Reykjavík en er alin upp á Selfossi. Faðir hennar er Sveinn Sigurmundsson og er framkvæmdastjóri Búnaðar- sambands Suðurlands og móðir hennar heitin hét Anna Atladóttir og var bankastarfsmaður. Soffía á þrjá bræður, þá Knút, Bjarna og Sölva. Maðurinn hennar er Elmar Viðarsson grunnskólakennari og eiga þau tvær dætur, Ernu Huld og Vigdísi Önnu. Kveður Matvælastofnun Soffía tekur við embættinu af Olgu Lísu Garðarsdóttur, sem hefur gegnt starfinu síðustu ár. Soffía vann í tæplega 19 ár í MH og hefur því góða þekkingu á starfsemi framhaldsskóla. „En ég hef núna verið tæp tvö ár hjá Matvælastofnun á Selfossi og sú reynsla mun nýtast mér gríðarlega vel, enda flókin og umfangsmikil stofnun. Ég á eftir að sakna Matvælastofnunar og starfsfólksins þar og kveð með trega. En svona er lífið, getur tekið óvænta stefnu og ég er full tilhlökkunar að takast á við ný verkefni. Skólinn er vinnustaður, sem gott orð fer af og ég tek við góðu búi af fráfarandi skólameistara,“ segir Soffía. Veðurfréttakona á Stöð 2 Nýr skólameistari útskrifaðist með masterspróf í efnafræði 2003 og hóf strax störf sem efnafræðikennari við MH. „Ég lauk diplóma í kennsluréttindum samhliða kennslunni fyrsta árið og bætti við mig MA í mannauðsstjórnun nokkrum árum síðar. Ég var lengst af deildarstjóri alþjóðlegrar námsbrautar í MH, sem heitir IB braut. Ég flutti til baka á Selfoss árið 2017, lauk diplómu í opinberri stjórnsýslu árið 2022 og það haust hóf ég störf hjá Matvælastofnun, sem sviðsstjóri vettvangseftirlits. Síðan hef ég sinnt ýmsum aukastörfum gegnum tíðina, t.d. verið ritari og þulur á kynbótasýningum í mörg ár, var fararstjóri í hestaferðum í nokkur sumur og vann sem veðurfréttakona á Stöð 2 í níu ár svo eitthvað sé nefnt,“ segir Soffía. Náttúrubarn Soffía hefur verið á kafi í hestamennsku frá því að hún man eftir sér og þá elskar hún að vera á fjöllum, hvort sem það er gangandi eða í hestaferð enda segist hún vera fyrst og fremst náttúrubarn. „Ég hef verið með tvo til þrjá hesta á húsi á félagssvæði Sleipnis og er dugleg að ríða út og þjálfa. Við pabbi erum mikið saman í hestunum, sem er dýrmætt. Ég hef verið talsvert í keppnisstússi svo hestamennskan snýst mikið um þjálfun fyrir keppni. Það gerir þjálfunina markvissari að hafa markmið. Svo hef ég verið í liði Hvolpasveitarinnar í áhugamannadeildinni síðustu fjögur ár, sem er frábær félagsskapur,“ segir Soffía. Ætlaði að verða kokkur Soffía á sér mörg áhugamál, hún er til dæmis í hlaupahópnum Frískum Flóamönnum og svo hefur hún mikla ánægju af eldamennsku og bakstri. „Sem unglingur langaði mig að verða kokkur en vinur minn, sem þá var kokkur, ráðlagði mér að eiga eldamennskuna sem áhugamál frekar en að leggja það fyrir mig, það var gott ráð,“ segir hún hlæjandi. Danmörk í sumar Nýi skólameistarinn segir að sumarið leggist mjög vel í sig og fjölskylduna. „Við erum á leiðinni til Danmerkur um miðjan júní, það er mikil tilhlökkun hjá öllum fyrir þeirri ferð. Annað hefur ekki verið planað í sumar, við ætlum bara að njóta góða veðursins í júlí, fara í útilegur, ríða út og kannski keppi ég á einu hestamóti. Maður á alltaf að líta á björtu hliðarnar, eða eins og Monty Python sungu um árið: „Always look on the bright side of life“,“ segir Soffía full tilhlökkunar. /mhh Fjölbrautaskóli Suðurlands: Fyrrverandi nemandi verður skólameistari Soffía er á kafi í hestamennsku og tekur þátt í mótum og ríður mikið út með pabba sínum. Hér er hún á keppnishestinum sínum, Skuggaprinsi frá Hömrum, í B-úrslitum í tölti í keppni á síðasta ári. Myndir / Aðsendar Rúmlega þúsund nemendur eru í Fjölbrautaskóla Suðurlands og starfsmenn eru um 150 talsins. Fjölmennasta brautskráning í sögu skólans var í lok maí en þá útskrifuðust um 170 nemendur frá skólanum. Mynd / mhh Soffía Sveinsdóttir. Samkeppniseftirlitið hefur komið í veg fyrir að Skeljungur kaupi Búvís ehf. þar sem síðarnefnda fyrirtækið er mikilvægur samkeppnisaðili á áburðarmarkaði. Talið var ljóst að samruni þessara tveggja fyrirtækja hefði haft skaðleg áhrif á markaði með innflutning á tilbúnum áburði. Búvís er mikilvægur keppinautur og því taldi Samkeppniseftirlitið (SKE) óhjákvæmilegt annað en að ógilda samrunann. Frá þessu er greint í frétt á vef stofnunarinnar. Búvís hafi verið stofnað sem andsvar við verulegum verð- hækkunum á áburði á sínum tíma vegna skorts á samkeppni. Fyrirtækið hafi breytt samkeppnisaðstæðum til hins betra með því að halda verði niðri og bjóða bændum bætta þjónustu og viðskiptakjör. Með samruna Skeljungs og Búvís telur SKE hætt við að markaðsaðstæður leiti í sama horf og fyrir stofnun síðarnefnda fyrirtækisins. Samkeppni umfram markaðshlutdeild Búvís sé öflugur keppinautur sem veiti öðrum fyrirtækjum samkeppni umfram það sem markaðshlutdeild gefi til kynna. Með samrunanum hefði burðugum keppinautum fækkað úr fjórum í þrjá, sem hefði leitt af sér meiri samþjöppun á fákeppnismarkaði en ásættanlegt þykir. Með fækkun keppinauta hefðu aðstæður til verðsamráðs orðið hentugri. Rannsóknir SKE hafi gefið til kynna að samningsstaða bænda gagnvart þeim sem þjónusti landbúnaðinn sé veik, ásamt því að fjárhagsstaða bænda sé iðulega erfið. Stofnunin segir samrunaaðila ekki hafa lagt fram fullnægjandi upplýsingar, gögn eða skýringar þess efnis að samruninn hefði haft í för með sér hagræði sem mótvægi við þau skaðlegu áhrif sem ætla megi að hlotnist af samrunanum. Ekki hluti af kjarnastarfsemi Í skriflegu svari við fyrirspurn segir Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, að með þessum úrskurði sé fyrirtækið knúið til að endurskoða innflutning á áburði, enda sé það ekki hluti af þeirra kjarnastarfsemi og enginn starfsmaður í föstu starfi sem sinni þeirri hlið. Tilgangur og markmið kaupanna hafi verið að færa áburðarinnflutning Skeljungs inn í Búvís og efla þannig starfsemi og samkeppnishæfni síðarnefnda fyrirtækisins á þessu sviði. „Í ljósi þess hversu lítil viðskipti um ræðir og hversu borðleggjandi okkur fannst að þetta myndi auka samkeppnishæfni Búvís á áburðarmarkaðinum töldum við að SKE myndi fagna þessu frekar en að hafna,“ segir í svari Þórðar. Hann gefur lítið fyrir þá fullyrðingu SKE að samrunaaðilar hafi ekki lagt fram fullnægjandi gögn, óskað eftir sáttaviðræðum eða lagt fram tillögur að mögulegum skilyrðum. Þvert á móti hafi Skeljungur lagt fram ítarlegar upplýsingar eins og óskað var eftir. Þá hafi fyrirtækið ekki talið að kaupin myndu falla undir þá skilgreiningu að þau yrðu skilyrt eða nauðsynlegt væri að leita sátta til að fá þau samþykkt. Einar Guðmundsson hjá Búvís tekur í sama streng. Þeir hafi fundað með SKE í lok maí og skýrt sína aðstöðu. Stofnunin hafi ekki kallað eftir tillögum að skilyrðum eða boðið þeim upp á sáttaviðræður. Hvorki stjórnendur Búvís né Skeljungs hafa tekið afstöðu til þess hvort málið verði tekið lengra. /ál Samkeppniseftirlitið: Sala Búvís stöðvuð Bræðurnir Einar og Gunnar Guðmundssynir hafa rekið Búvís frá stofnun. Mynd / Aðsend

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.