Bændablaðið - 13.06.2024, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 13.06.2024, Blaðsíða 23
23FréttaskýringBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024 en að fá það sent að utan. Við vitum aldrei hvað gerist í þessum furðulega heimi okkar og hvort eða hvenær við þurfum að geta staðið á okkar eigin fótum óháð öðrum.“ Tækifæri sem aukabúgrein Halla Sif, sem Eyjólfur nefnir hér að framan, er garðyrkjubóndi, eigandi Sólskins grænmetis, auk þess sem hún situr í stjórn deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands. Hún kom sjálf ný inn í greinina fyrir fáeinum árum og keypti þá Mela á Flúðum, sem var ein af stærri garðyrkjustöðvum Íslands, bæði í úti- og ylrækt grænmetis. „Við sáum þetta dálítið þannig við endurskoðunina að fyrst ekki var meira fjármagn í boði þá gæti þetta ákvæði, að minnka styrkhæft land í útiræktuninni, kannski verið gagnlegt til að opna dyrnar bæði fyrir nýliða og bændur í öðrum búgreinum að koma inn. Það var nefnilega dálítið stórt skref að taka áður, að fara beint í ræktun á einum hektara til að geta fengið einhvern stuðning. Þetta er hvatning fyrir þá sem stunda annan búskap að sjá meiri tækifæri í að taka hluta af hektara af landi undir til dæmis kálræktun sem ýtir þá undir betri skiptiræktun og bættari rekstrargrundvöll á þeirra búum. Salan getur þá mögulega farið fram beint frá bændunum til nærumhverfisins, fjarri borginni, frekar en að allt grænmeti fari í dreifingu í gegnum þessar hefðbundnu söluleiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu. Ég ímynda mér að það sé ekkert auðvelt til dæmis fyrir nýjan blómkálsræktanda sem er með litla framleiðslu að koma sér fyrir á markaði. Þá var hugsunin kannski sú að gera nýliðum auðveldara fyrir með þessari minnkun á styrkhæfu ræktarlandi að reyna fyrir sér í nýjum tegundum sem þá er hægt líka að selja á betra verði sem sérvöru í raun,“ segir Halla sem segist þó ekki vita af neinum sem ætli að nýta sér þessar breytingar í sumar. „Þetta var þó skásta leiðin sem í boði var sem hvatning til nýliðunar í útiræktuninni. Til dæmis þeir sem eru tilbúnir til að leigja land og bara fara ferskir af stað,“ bætir hún við. Halla segir að á móti þessu vegi sú staðreynd að heildarstyrkupphæðin þynnist út eftir því sem fleiri bætist við. Hins vegar sé mikilvægt þá að sýna stjórnvöldum að það sé áhugi á því að komast inn í greinina, í því skyni að hægt verði að sækja aukna fjármuni í framtíðinni. Vænleg rauðrófuræktun Eins og fram hefur komið hér að ofan hafa nokkrar nýjar tegundir verið reyndar á undanförnum árum; hvítlaukur, nípur og rauðrófur til dæmis. Rauðrófur nefnir Helgi Jóhannesson, garðyrkjuráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins, sérstaklega sem vænlega tegund sem væri hægt að rækta í meira mæli hér auk þess sem markaðsaðstæður séu líka hagstæðar þar sem mikið er flutt inn af henni. Hann segir að hún sé þó ekkert auðveld í ræktun og þurfi langan vaxtartíma. Varðandi breytingarnar á garðyrkjusamningnum segir Helgi að með þeim hafi verið að vissu leyti komið til móts við smærri framleiðendur, þannig að þær ættu rétt á einhverjum stuðningi. Jarðræktarstuðningurinn virki þannig að hver framleiðandi sæki um þann hektarafjölda sem hann er með í ræktun og svo fá þær umsóknir sem samþykktar eru eftir úttektir útdeilt hlutfallslega úr þeim potti sem sé til ráðstöfunar. Það þurfi að vera uppskorið land. Skortur á þróunarfé til þekkingaröflunar Helgi segir að einungis örfáir nýir aðilar hafi gefið sig að honum undanfarið og óskað eftir ráðgjöf um fyrstu skrefin í útiræktun. Þeir séu þó ekki að hugsa um neinar nýjar tegundir fyrst um sinn, heldur þær sem þegar er komin góð reynsla af. Varðandi annað rótargrænmeti, matlauk og annað grænmeti sem flutt er til landsins í stórum stíl, segir Helgi að vandamálið sé að verðið sem þurfi að keppa við sé svo lágt. Garðyrkjubændur geta eiginlega ekki lagt út í slíka samkeppni nema hægt sé að skapa sér einhverja sérstöðu, til dæmis á forsendum gæða og uppruna – eins og ýmis dæmi séu um Íslandi. Til dæmis væri örugglega vel hægt að selja ferskan íslenskan matlauk, eins og nú er reynt til dæmis með hvítlauk. Hann segir margar tegundir sem fluttar eru hingað inn vera á mörkum þess að vera hægt að rækta á Íslandi, en undirstöðurannsóknir og tilraunir með yrki vanti þó tilfinnanlega fyrir greinina eins og sé í kornræktinni. Þar vanti þróunarfé, sem væri þá hægt að nýta til þekkingaröflunar hjá bændum og í fræðasamfélögum. Nýr Fendt 300 V ario ! Gerðust áskrifandi að fréttabréfinu núna á www.fendt.com/300 – VERKIN TALA Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri It‘s Fendt.   Beacause we understand Agriculture. fendt.com | Fendt is a worldwide brand of AGCO. Nýtt og byltingarkennt starfsumhverfi með FendtONE. Hornsteinninn bak við alla nýsköpun hjá Fendt er að taka eitthvað stórkostlegt og gera það betra. Nýja Fendt vinnuumhverfið býður fleiri skjái og aðgengilega stjórnrofa, með öllum þessum frábæru Fendt eiginleikum. Nýir Fendt eigendur munu samstundis upplifa sig á heimavelli. Helgi Jóhannesson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.