Bændablaðið - 13.06.2024, Blaðsíða 41
41Á faglegum nótumBændablaðið | Fimmtudagur 13. júní 2024
Mikil notkun heimanauta hefur
um langa hríð verið eitt helsta
umræðuefni og þrætuepli í
íslenskri nautgriparækt.
Helst kreppir
skórinn í kvígu
sæðingum. Innan
við 30% fæddra
kálfa undan
fyrsta kálfs
kvígum eru undan
sæðinganautum
og einungis
rúmlega tveir
þriðju allra fæddra kálfa eru undan
sæðinganautum. Ráðunautar hafa
lengi kvabbað í bændum yfir þessu
og réttilega bent á að heimanautin
eru dragbítur á erfðaframförum.
Sumir bændur eru langþreyttir á
aðfinnslunum. Þrátt fyrir kvabbið
hefur staðan ekki batnað og heldur
versnað hin síðari ár.
Umræðan um heimanautanotkun
er ekki síður aðkallandi eftir að
erfðamengjaúrval var tekið upp.
Sú ákvörðun var tekin þegar
erfðamengjaúrval var innleitt að birta
bændum erfðamat nautkálfa. Erlendis
hafa kynbótafyrirtæki haldið slíkum
upplýsingum leyndum. Það er til þess
að vernda hagsmuni fyrirtækjanna sem
vilja ekki að bændur selji gripina á
grundvelli erfðamats sem þessi sömu
fyrirtæki hafa haft mikið fyrir að
reikna. Birting erfðamatsins til bænda
græfi undan þeirra starfi.
Hérna kemur að mikilvægu
tæknilegu atriði sem varðar val á heima
nautum. Ef naut er valið á grundvelli
foreldra sinna, þ.e. kynbótamati sem er
meðaltal móður og föður, þá er öryggi
úrvals afar lágt. Hins vegar er öryggi
úrvals mjög sambærilegt hjá öllum
gripum sem fá erfðamat, að því gefnu
að ættfærslur, arfgreiningar ættingja,
og skýrsluhaldsgögn séu áreiðanleg.
Þetta gerir að verkum að bændur
hafa betra tól í höndunum til að velja
heimanaut heldur en áður, ef þeir kjósa
að gera svo.
Hættan við birtingu erfðamats
fyrir nautkálfa er að bændur dragi úr
notkun sæðinganauta, kaupi frekar sín
á milli naut með hátt erfðamat og noti
þau sem þarfanaut, og dragi heldur
úr sæðingum. Ef þetta raungerist
yrði um að ræða gríðarlega afturför í
íslenskri nautgriparækt og hugsanlega
algjöran forsendubrest. Með þessum
skrifum mínum er ég ekki að lýsa
vanþóknun minni yfir þeirri ákvörðun
að birta erfðamat nautkálfa. Það
eru góð rök með og á móti þessari
ákvörðun. En mér þykir mikilvægt
að allir geri sér grein fyrir mikilvægi
þess að ekki verði frekari aukning í
notkun heimanauta. Ég tel að íslensk
nautgriparækt ætti að stefna að því að
að minnsta kosti 90% fæddra kálfa séu
undan sæðinganautum.
Tæknisæðingar eru ein mikil
vægasta bylting sem hefur átt sér
stað í kynbótum nautgripa. Ástæðan
er sú að með sæðingunum er hægt
að nota bestu gripina margfalt á við
náttúrulega sæðingu og auka þannig
úrvalsstyrk. Aukning úrvalsstyrks
með sæðingastarfi hefur verið
lykilþáttur í þeim erfðaframförum
sem hafa orðið hjá mjólkurkúm á
Íslandi og erlendis síðustu áratugi. Ég
efast um að það breytist á næstunni.
Sæðinganautin á hverjum tíma eru
að jafnaði erfðalega bestu gripirnir
í stofninum. Notkun heimanauta
felur í sér notkun lakari gripa og
dregur þannig úr úrvalsstyrkleika.
Þetta gildir jafnvel þó að öryggi
úrvals fyrir heimanaut verði hærra
með erfðamati. Niðurstaðan af
áframhaldandi mikilli eða aukinni
notkun heimanauta verður minni
erfðaframfarir.
Ágúst Sigurðsson og Jón Viðar
Jónmundsson mátu erfðaframfarir í
íslenska kúastofninum árið 2011 og
skoðuðu sérstaklega áhrif heimanauta
á úrvalsyfirburði. Þeirra niðurstaða
var að notkun heimanauta drægi
verulega úr úrvalsyfirburðum og þar
með úr erfðaframförum í stofninum.
Tilkoma erfðamengjaúrvals breytir
ekki þeirri staðreynd að þátttaka
í sameiginlega sæðingastarfinu
er forsenda fyrir áframhaldandi
erfðaframförum.
Ekki er pláss í þessari grein
til að rekja ástæður fyrir dræmri
þátttöku í sæðingum. Hver bóndi
hefur sínar ástæður. En ég vil
enda þennan pistling á því að feta
í kunnugleg fótspor ráðunauta og
kynbótafræðinga og hvetja bændur
til að auka kvígusæðingar. Ef
bændur sjá sér ekki fært að vera
án heimanauta, þá er það rétt að
erfðamatið gerir kleift að velja þessi
naut með meira öryggi en áður. Hins
vegar er það skammgóður vermir ef
sameiginlega ræktunarstarfið bíður
skipbrot í leiðinni.
Höfundur er kynbótafræðingur
og lektor við LbhÍ.
Smellugas
Hjá okkur finnur þú allar mögulegar
stærðir, gerðir og lausnir í gaskútum
Skannaðu QR kóðann
fyrir allt úrval og sölustaði
Af heimanautum og
sæðinganautum
Egill Gautason.
...Gæði þegar að er gáð
Skemmuvegur 46, Kópavogur
Rafstilling S: 581-4991 Netfang: Rafstilling@rafstilling.is
Reki S: 562-2950 Netfang: Reki@reki.is
Stórhöfða 21, 110 Reykjavík | 545 5500 | flis@flis.is | flisabudin.is