Víðförli - 01.05.1951, Blaðsíða 5

Víðförli - 01.05.1951, Blaðsíða 5
SKÍRN — UNGBARNASKÍRN o jarðlífsdögum hans. En hann gekkst sjálfur undir skírn Jóhann- esar og Oscar Cullmann hefur sýnt fram á hið lifandi og grund- vallandi samband í vitund hans milli þeirrar vígslu, sem hann þá hlýtur, og þess skilnings á gildi dauða síns, sem með honum bjó. I annan stað lætur Jóhannesarguðspjall vitneskju í té um það, að lærisveinar hans hafi skírt á starfstíma hans — vitanlega þá að fyrirlagi hans og hefur sú skírn að sönnu aðeins verið fyrir- myndan þess, sem koma skyldi, hún hefur verið hliðstæð skírn Jóhannesar, þar sem skírn gat ekki grundvallast á verki Krists fyrr en það var fullnað. Staða skírnarinnar í Nýja testamentinu er blátt áfram óskiljan- leg, ef ekki er gengið út frá því, að' fyrir hafi legið óvggjandi vissa um. að hún hyggðist á vilja og boði Drottins. Samanber greind ummæli Péturs, þegar hann kom fyrst fram í nafni hins upprisna. Svo sjálfkrafa, hiklauist og ótvírætt er svar hans, að það hlýtur að hafa verið undirbúið, djörfung hans verður ekki skýrð með öðru móti en afdráttarlausri vissu um, að hér tali hann fyrir hönd Jesú og í hans orðastað. Nýja testamentið notar margar myndir og líkingar til þess að tákna það, sem í skírninni felst. hvernig hún er dyrnar inn í þá nýju tilveru, sem koma og sigur Messíasar skóp. htún er hliðstæð örkinni forðum (1. Pét. 3,20) eða hinni undursamlegu björgun yfir Rauðahafið (1. Kor. 10), hún er laug endurfæðingar og end- urnýungar heilags Anda, sem miskunn Guðs hefur gefið til stað- festingar á því, sem hann hefur framkvæmt í Jesú Kristi (Tit. 3,5). Nýlt mannkyn er að verða til, skapað í hinum nýja Adam, hinni nýju, sönnu guðsmynd á jörð. Þeir, sem skírast til Krists, íklæðast Kristi, (Gal. 3,27). Þeir eru greftraðir með hinum krossfesta og upprisnir með hinum upprisna. samgrónir honum. eins og fallið lim væri tekið og gróðursett á lifandi stofni. Líkami syndarinnar er að engu gjör, líf upprisunnar er þeirra líf, svo framarlega sem þeir gera að sinni eign það, sem þeim var gefið í skírninni. Þannig útlistar Páll í 6. kap. Rómverjabréfsins, og áminning hans til skírðra lesenda sinna er iþá líka fólgin í því einu að benda þeim blátt áfram á. hvílík fjarstæða það væri, ef sá, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.