Víðförli - 01.05.1951, Qupperneq 42
40
VÍÐFÖRLI
Svipaðar hugmyndir höfðu Kanverjar hinir fornu um guði
sína og gyðjur og spámenn ísraels þreyttu aldalanga, þrotlausa
baráttu gegn þessum hugsunarhætti.
Hjónabönd barna?
Indversk stúlka er gift á barnsaldri. Foreldrarnir og ættin sjá
fyrir því. Samkvæmt fárra ára gömlum skýrslum voru í Indlandi
750 ekkjur innan eins árs, 15,000 innan 5 ára aldurs, 102,000
innan tíu ára aldurs og 279,000 innan fimmtán ára aldurs.
Og nú er það ekkert sælulíf að vera ekkja í Indlandi. Það er
trú, að hún eigi sök á dauða rnanns síns. Það eru ekki margir
áratugir síðan indversk ekkja varð að fylgja manni sínum í gröf-
ina lifandi. Og þótt slíkt sé nú úr sögunni fyrir bein og óbein
kristin áhrif, þá hafa ekkjur Indlands allt til þessa verið álitnar
óhreinar, réttlausar og hvers manns afhrak.
Lesandinn getur velt fyrir sér, hvaða þýðingu hin kristnu áhrif
hafi haft, sem Muthu Laksmi varð fyrir í skóla kristniboðsins, sem
lauk upp dyrum sínum fyrir henni, að því leyti sem henni auðn-
aðist að láta til sín taka um þessi mál.
Þegar John R. Mott er búinn að lýsa kjörum og aðstöðu kon-
unnar innan hinna ýmsu trúarbragða víðsvegar um heim, segir
hann: „Sú þjáning, líkamleg og andleg, sem af slíkum kjörum
leiðir, er meiri en nokkur maður getur ímyndað sér, sem ekki hefur
séð það með eigin augum. Og hvaða boðskap um lífið eftir dauð-
ann hafa svo þessi trúarbrögð? Því að konan getur þolað mikið,
ef hún hefur einhvers að vona. Hvað býður hindúisminn (trúar-
brögð Indverja) henni? Hún getur endurfæðst hingað til jarðar
— sem karlmaður. Hvað boðar Múhammed? Paradís handa karl-
mönnum, þar sem sæla þeirra byggist meðfram á eilífri niðurlæg-
ingu konunnar.“
Oft hugsa menn ekki út í, hvað þeir eiga eða hvers þeir hafa
notið, fyr en þeir veita því athygli, hvað aðrir hafa farið á mis
við. Það mun vísast líka eiga við um marga, sem fæðst hafa og
lifað í mannfélögum. sem kirkja Krists hefur starfað í öldum
saman.