Víðförli - 01.05.1951, Side 14

Víðförli - 01.05.1951, Side 14
12 VlÐFÖRLI farið að vilja hans um það að taka konur til altaris, þótt karlar einir væru viðstaddir, þegar hann sagði: Gjörið |>etta í mína minn- ingu. A jarðlífsdögum Jesú var það hin persónulega köllun hans, sem leiddi menn til samfélags við hann. Eftir að hann var héðan far- inn tekur skírnin við því hlutverki. Hún er inngangur inn í sam- félag hans. Nú er það kunnugt, að Jesús tók eins ótvírætt og verða má af skarið um það, að börnin mættu koma til sín og tilheyra sér: Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki. því að slíkra er guðsríkið (Mk. 10,4). Frá elztu tímum hefur guðspjallið um Jesúm og börnin tilheyrt skírnarrituali kirkjunnar. Menn hafa litið á orð hans og atferli á þeirri stundu sem skýlaust svar við þeirri spurningu, hvort börnin hafi rétt til þess að til- heyra samfélagi Krists, hvort þau megi vígjast undir merki hans. „Andmælin gegn ungbarnaskírn eru eldri en hún sjálf og hrakin af Drottni sjálfum" (P. Madsen). Endurskírendur líta svo á, að skírnin sé að réttu lagi nokkurs- konar staðfesting á inntökuprófi inn í samfélag Krists. En Jesús gerði ekki kröfur til inntökuprófs: Komið til mín, fylg þú mér, leyfið þeim að koma, það var hið fyrsta. Köllunin var náðarútvaln- ing, hvort sem í hlut átti tollheimtumaður, bersyndugur eða barn. grundvöllurinn frá mannsins hálfu aðeins sú fátækt andans, sem ekkert hafði fram að leggja og gat þessvegna þegið allt. Ekki hafið þér útvalið mig, heldur hef ég útvalið yður, og ég hef sett yður til þess að þér farið og berið ávöxt. (Jóh. 15,16). Menn verða ekki meðlimir kirkjunnar, menn komast ekki í samfélag við Krist vegna þess að þeir hafi borið ávöxt, heldur til þess «ð bera ávöxl. Og það hefur oft og af mörgum verið á það bent, að meginrök- semdin fyrir réttmæti barnaskírnar isé ekki sú, að hún eigi að haki sér rótgróna hefð, sem sterkar líkur henda til að sé jafngömul kristindóminum, heldur hitt, að hún sé í svo nánu samræmi við grundvallarskilning kristinnar trúar á afskiptum Guðs af mönnun- um og eðli hjálpræðisins. Gleðiboðskapurinn er þetta, að Guö vitjar mannsins ar> fyrra bragði. Yfirskrift barnaskírnarinnar gæti verið orðin í Jes. 4?>:

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.