Víðförli - 01.05.1951, Page 10

Víðförli - 01.05.1951, Page 10
8 VÍÐFÖRLl dýrmæta er þetta, að GuS játast manninum, það er grundvöllur- inn, ekki hitt, að maðurinn játast Guði. Það er þetta, sem skilur endurskírendur og Nýja testamentið og þetta er meginatriðið í sambandi við barnaskírnina. „Trú mín skapar ekki skírnina, held- ur þiggur skírnina.“ „Skírnin grundvallast ekki á trúnni, heldur trúin á skírninni“ (Lúther). Munurinn er sá, að annars vegar byggist allt á afstöðu mannsins, hinsvegar allt á afstöðu Guðs. En hver getur byggt hjálp sína í lífi og dauða á því, að hann hafi gengið Guði á hönd sem hans barn — hver var heill í því, hvað er 'það í vilja mínum og kenndum, sem ég get ekki efast um? A hinu er hægt að byggja, að Guð gekk til samfélags við mig sem faðir og frelsari. Guð hefur játast mér. Um hann get ég ekki ef- ast. Hann var heill. Það var engin stundarstemning, engin augna- blikshneigð klofins og tvíátta vilja. Hans ákvörðun haggast ekki. Guðs styrki grundvöllur stendur. Á iþessu er hægt að byggja, því fremur, hafi Guð játast mér algerlega að fyrra bragði, hafi hann kannast við mig, áður en ég kunni að nefna hans nafn, áður en ég hafði meðvitund um sjálfan mig, hafi hann svarað áður en ég kaliaði (Jes. 65,24), gefið áður en ég kunni að biðja, hafi hann tekið mig ómálga og óvitandi að sér sem sitt barn í heilagri skírn og gjört mig að erfingja eilífs lífs — svo aftur sé vitnað í gömlu fermingaLbænina. Og hér er þá komið að öðrum þætti þessa máls, barnaskírninni. Það er ekki ófýrirsynju, að það mál sé lekið til umræðu og yfirvegunar, eins og sakir standa. Evangelísk-lúthersk kirkja á áreiðanlega það verk í vændum að gera sér glöggvari grein fyrir réttmæti og þýðingu ungbarnaskírnar. Skírendum, einkum hvíta- sunnumönnum, vex hér fiskur uni hrygg allverulega, og hvað sem öllu öðru líður, þá getur skírnarkennipg þeirra og skírnarháttur þjóðkirkjunnar með engu móti samrímst. Enda leggja þeir mikla áherzlu á þetta atriði og allur þorri manna hefur fáu til að svara. hinar biblíulegu röksemdir koma flatt upp á flesta, því að fæstir hafa neitt um málið hugsað eða neitt um það fræðst síðan um

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.