Víðförli - 01.05.1951, Page 16

Víðförli - 01.05.1951, Page 16
11 VÍÐFÖRLI arlíf einstaklingsins að hafa þegið skírn á vöxnum aldri og vit- andi vits. Það isé a.m.k. dýrmæt minning og styrkur fyrir hið góða áform að lifa Guði. Eitthvað getur verið til í þessu, en mun þó bregða til beggja vona eftir upplagi og gerð og ýmsum aðstæðum. Geðblær vissrar stundar, sem maður lifir í eitt skipti fyrir öll, er næsta ótrvggur grundvöllur, harla valt að treysta því, hvernig manni kann að vera innanbrjósts á slíkri stundu, hættan óneitanlega nokkur, eins og ég hygg að reynslan sýni, að menn reyni að skrúfa sig upp í kenndir, sem ekki eru eins „ekta‘‘ og varanlegar sem skyldi. Kirkj- an hefur aðrar athafnir, sem eðli sínu samkvæmt eru til þess kjörnar að styrkja manninn á einum áfanga til annars, að vekja manninn og staðfesla í hetrunaráformi og styðja hann á helgunar- braut. Þar er kvöldmáltíðin, „sakramenti endurnýjunarinnar“ (sacramentum renovationis) og einkalskriftirnar. Ég fæ ekki komið auga á neitt, sem geti verið dýrmætara fvrir þann mann, sem nemur köllun Guðs og vaknar til umhugsunar um eilífðarörlög sín en að vita þetta, að Guð hefur leitað hans, Guð hefur vitjað hans, Guð hefur fundið hann. Pascal fannst hann hafa glatað Guði og ekki getað fundið hann. Það birti vfir í sálu hans, þegar honum fannst Guð segja við sig: Þú myndir ekki leita mín, ef ég hefði ekki þegar fundið þig. Og gæti ekki hver og einn farið í eigin harm um þetta. Minningar vorar um af- stöðuna til Guðs, um það, sem vér höfum áformað, þau skref. sem vér höfum stigið, eru þær minningar svo sérslaklega fagnað- arríkar, þegar vel er að hugað? Ég hef ekki í huga meðvitaða af- neitun eða fráfall, ef einhverjir eiga slíks að minnast, heldur þær stundir eða skeið ævinnar, þegar vér vildum vera hans. En á bak við allar minningar. á undan öllum víxlsporum og fráhvarfi, á undan öllum brigðum við Guð, hvort sem var í höfnun hans eða hálfri játningu, er þetta, sem hann gerði í upphafi — hann vígði mig til 'Samfélags við sig, tímanlegs og eilífs, gaf mér sjálfan sig. eins og hann gaf mér lífið sjálft, án þess að láta það hindra sig. þótt ég kynni að traðka þessa gjöf. Hann kallaði mig lil fullrar.

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.