Víðförli - 01.05.1951, Page 37

Víðförli - 01.05.1951, Page 37
HEFUR KRISTINDÓMURINN GERT GAGN ? 35 leiðingar stjórnkænskunnar. En utan gáttar hinna veglegu salar- kynna sést Kristur á leið út úr höllinni. Og undir myndinni standa orðin: „Hann var ekki kvaddur til.“ Listamaðurinn hefur þarna höndlað og túlkað í leifturmynd sjálfan kjarna málsins. Er ekki kristindómurinn gjaldþrota? spurði ég að upphafi þessa máls í orðastað ýmissa nútímamanna. Gjaldþrota er sá, sem ekki á lengur þau verðmæti, sem svari til þeirra skuldbindinga, sem liann hefur tekið á sig. Á það við um kristindóminn? Enn er ég ekki farinn að sjá eða heyra þann mann — og býst ekki við að gera það hér eftir —, sem haldi því fram í alvöru að athuguðu máli, að kristindómurinn geti ekki staðið við skuld- bindingar sínar, —- ef skilyrðum hans er fullnægt. Það hefur enginn reynslu af því í einkalífi sínu, að kristindómurinn bregð- izt, ef skilyrði hans eru tekin til greina. Allir, sem um það geta borið af raun, flytja samhljóða vitnisburð. Og mannlífið almennt, þjóðlíf, samlíf þjóðanna? Hafa menn í forystulöndum álfunnar, hafa leiðandi menn víðsvegar um hinn svo nefnda kristna heim •ef til vill bundizt samningum og samtökum um það að fullnægja skilyrðum kristindómsins, gangast undir kröfur hans? Er það svo kristindómurinn, sem hefur brugðizt, þegar á reyndi? Svarið við þessari spurningu veit hver maður, sem þetta les, hver læs og hugsandi maður, hvar sem er. Læknir, sem ekki er sóttur eða að litlu hafður, verður ekki sakaður, þótt sjúklingi farnizt illa. Skáldið Bernhard Shaw lét einhvern tíma hafa eftir sér þessi athyglisverðu ummæli: „Ég les í evrópskum blöðum, að kristin- dómurinn sé orðinn gjaldþrota. Hvað eru mennirnir að fara? Hef- ur kristindómurinn nokkurn tíma verið látinn reyna sig? Vér höf- um fylgt Barrabasi í 1900 ár. Er ekki kominn tími til, að vér reynum Krist og fylgjum honum?“ Svo er annað, sem margir virðast ekki gera sér grein fyrir

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.