Víðförli - 01.05.1951, Side 56

Víðförli - 01.05.1951, Side 56
54 VÍÐFÖRLI hefur opinberað. Þegar þessi skilmerkilega „skýrgreining“ er fengin, liggur næst fyrir að spyrja: „Hvernig er þessi betri vit- und fengin?“ Maður les blaðsíðuna með áfergju og þá næstu, en aldrei kemur svarið. Nema niðurlagsorð kaflans eigi að skoðast sem svar við þessari spaklegu spurningu, en þar segir, að Guð muni vera glöggsýnni og umburðarlyndari en sr. Sigurbiörn — merkileg, theologisk niðurstaða út af fyrir sig en samband henn- ar við uppruna hinnar betri vitundar er dálítið torskilið. Hverfum aftur að „skýrgreiningunni.“ Eftir henni sýnist það verða nokkurt vafamál, að t. d. Stóridómur og annað hliðstætt, hafi verið syndsamlegt atferli. Ef sr. Benjamín hefur verið búinn að átta sig á þessum vísdómi þegar hann'var að auglýsa sinn and- lega þroska með því að fordæma slíkt, hlýtur liann að hafa geng- ið úr skugga um það, að þeir, sem að því stóðu, hafi „raunveru- lega haft á tilfinningunni,“ að þeir væru að fremja rangan og illan verknað. Annars eru þeir sýknir saka. Og ekki veit ég, hvern- ig sr. Benjamín hefur farið að þvi að rannsaka hjörtu þeirra og nýru, sem frömdu aftökur á Þingvelli fyrr á öldum. Það má taka fleiri dæmi. Það er tvísýnt, að þeir, sem höfðu forgöngu um galdrabrennurnar hafi brotið gegn sinni betri vitund. Sama máli gegnir um þá, sem létu Sókrates drekka eitrið. Og þá, sem krossfestu Krist. Enda segir sr. Benjamín, — og segir þá satt —, að forfeður okkar hafi talið það „stundum lieilaga skyldu og manndóm“ að drepa menn. Svo var um marga fleiri. þar á meðal þá höfðingja í Jerúsalem og Aþenu, sem tóku Sókra- tes og Krist af lífi. Sr.Benjamín innleiðir þetta með spekilegum tilburðum og venju- legum úrskurðum um „fávíslegar hugleiðingar“ mínar. Ég hafðl lagt fyrir hann spurningu um uppruna syndarinnar og er hann reyndar búinn að svara henni, þegar hér er komið, svo sem senn verður nánar vikið að. En hér lætur hann svo um mælt, að spurn- ingunni sé „auðveldast að svara með því að athuga eðli syndar- innar“ (og gæsalappar syndina eins og vænta má). En svo lendir þetta „auðvelda“ svar í eintómum vangaveltum um það, hve mikið ber á milli í skilningi ólíkra tíma og þjóða á réttu

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.