Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 12

Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 12
11SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010 efnisins. Fyrir það fé var girt lítið svæði á eystri bakka Almannagjár vorið 1899 og þar gróðursettar fjallafurur, birki, hvítgreni og elri auk lítilsháttar af reyniviði, ösp og víði. Í dag er furulundurinn hér sem við stöndum nú við afrakstur þeirrar gróðursetningar. Áhugi Carls Ryder og samstarf hans við Carl V. Prytz leiddi til þess að ráðinn var til landsins Christian E. Flensborg, skógfræðingur. Má segja að aðkoma þessara þriggja einstaklinga, verk þeirra og áhugi, auk góðrar þekk- ingar á skógrækt hafi rutt brautina fyrir öflugu skógræktarstarfi Íslend- inga næstu áratugina. Þáttur Norðmanna í stuðningi við skógrækt á Íslandi hefur verið umtalsverður allt frá upphafi ræktunar hér á landi. Má þar m.a. til nefna Þjóðargjöf Norðmanna, er Ólafur fimmti Noregskonungur heimsótti Ísland árið 1961 og færði Íslendingum að gjöf myndarlegan fjárstyrk til að efla skógrækt. Meg- inhluta styrksins var varið í að reisa rannsóknarstöð í skógrækt að Mógilsá og úr hinum hlutanum var stofnaður norsk–íslenski skógræktarsjóðurinn sem efla skyldi samskipti þjóðanna á sviði skógræktar. Við höfum líka notið þess að eiga öfluga forystu- menn í skógrækt á umliðnum áratugum sem með starfi sínu og einlægum ræktunaráhuga hafa lagt mikið til íslenskrar skógræktar. Aukin tækifæri til menntunar á sviði skóg- og vistfræði, hvatning og stuðningur frá frændþjóðum okkar og sú reynsla sem fengist hefur á liðnum áratugum færir okkur vissu um að skógrækt á hér góða framtíð. Innan vébanda Skógræktarfélags Íslands eru nú 61 skógræktarfélag með á áttunda þúsund félags- menn og ræktunarsvæðin eru um 300 á 20 þúsund hekturum lands. Skógræktarfélag Íslands stendur fyrir öflugri útgáfu fræðslurita um skógrækt og hefur lagt áherslu á að vekja áhuga landsmanna á gildi skógræktar til betri lýðheilsu og aukinnar at- vinnusköpunar. Með Landgræðsluverkefninu sem hleypt var af stokkunum árið 1990, með stuðningi ríkisvaldsins, hefur enn eitt skref verið stigið til efl- ingar nýskógræktar. Skógræktarfélag Íslands getur því með stolti fagnað 80 ára afmæli félagsins í þeirri vissu að vegur skógræktar mun vaxa um ókomin ár.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.