Skógræktarritið - 15.10.2010, Qupperneq 34

Skógræktarritið - 15.10.2010, Qupperneq 34
33SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010 og er allt þetta fólk fyrir löngu orðnir viðurkenndir Íslendingar, þó það hafi ekki náð fullum tökum á íslenskri tungu. En hvað með innfluttu trjátegund- irnar? Hversu langur tími og hve margar kynslóðir þurfa að líða áður en þessar lífverur verða viður- kenndir þegnar landsins? Fjölmargar þeirra trjátegunda sem kerfisbundið voru leitaðar uppi og valdar af Hákoni Bjarnasyni og samstarfsmönnum hans, hafa fyrir löngu sýnt og sannað að þær geta dafnað hér vel, þrífast hér ágætlega og hafa aukið kyn sitt rétt eins og aðrir nýbúar landsins. Hvar er eiginlega umburðarlyndið? Nær það ein- ungis til dýra og fólks en ekki til gróðurs eins og inn- fluttra trjátegunda? Er þetta kannski einhvers konar ótti gagnvart þessum trjátegundum sem vaxa okkur sumar hverjar fljótlega yfir höfuð? Til varnar barrtrjám Fyrir nokkrum árum kom fram sú umræða og varð allhávær að ástæða væri til að hafa áhyggjur af skógrækt í grennd við Þingvallavatn. Sagt var að skógrækt, einkum barrtrjáa, hefði neikvæð áhrif á vatnsgæði og leiddi af sér ofauðgun af nítrati eða köfnunarefni bæði straumvatna og stöðuvatna27. Byggðist þessi umræða á erlendum rannsóknum, á stöðum þar sem aðstæður eru ekki sambærilegar Ís- landi. Þegar þessi sjónarmið voru sett fram höfðu skógræktarmenn ekki fullgild svör á reiðum höndum við fullyrðingum um skaðsemi skógarins. Rann- sóknir hérlendis á áhrifum skógræktar á vötn og vatnalíf voru þá afar takmarkaðar. Umræðan hafði mikil áhrif um land og hefur gjarnan komið upp þar sem sveitarfélög hafa unnið að aðalskipulagi og deiliskipulagi á síðustu árum. Eru nokkur dæmi um að skógrækt hafi verið bönnuð í ákveðinni fjarlægð frá ám og vötnum með tilvísun í framangreind rök. Í Morgunblaðinu 10. apríl 2010 er grein þar sem segir frá rannsóknum Bjarna Diðriks Sigurðssonar prófessors við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri um þessi efni. Niðurstöður hans ganga þvert á fyrri fullyrðingar28. Árið 2004 beitti Skógrækt ríkisins sér fyrir viðhorfskönnun meðal almennings um barrskógana á Þingvöllum, sem unnin var fyrir IMG-Gallup. Niður- stöðurnar voru fyrir marga hluti mjög athyglisverð- ar: 35% aðspurðra höfðu á þessu máli enga skoðun; 33% fannst að þeim barrtrjám sem nú þegar eru á Þingvöllum ætti að þyrma en ekki gróðursetja fleiri og 28% fannst að barrtré mætti gróðursetja áfram á Þingvöllum. Aðeins 4% fannst að barrtré ættu ekki að vera á Þingvöllum og því ætti að fjarlægja þau. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í könnuninni, eða 61%, voru með því að barrtré mættu standa í þjóðgarðinum en einungis 4% vildu fella þau og afmá með öllu! Athyglisvert er að flestir vildu hafa barrtrén en láta staðar numið og ekki planta fleirum29. Það var mjög alvarleg og umdeild ákvörðun Þing- vallanefndar á sínum tíma að láta afmá barrtrén á Þingvelli, einkum þar sem Valhöll var. Þar hefur kappið verið öllu meira en skynsamlegt má telja og takmarkaður skilningur á fyrri ákvörðunum sem hafa verið taldar réttar. Sú ákvörðun verður líklega seint byggð á lýðræðislegum forsendum og ein- kennist meira af tilfinningalegum rökum en eðlilegri skynsemi. Hvernig eru viðhorf meðal annarra þjóða? Í nánast öllum réttarríkjum heims eru það viður kennd viðhorf að vernda sem mest skóglendi og efla það. Í Þýskalandi, svo dæmi sé nefnt, má ekki fella skóg vegna mannvirkjagerðar nema jafnstórt svæði og jafnvel stærra sé klætt nýjum skógi í stað þess sem fellt er. Er þó Þýskaland eitt skógríkasta land Evrópu og þykir e.t.v. einhverjum nóg um, sem kann betur að meta skógleysið á Íslandi. Við Íslendingar erum ekki eina þjóðin í heim- inum sem situr uppi með röskuð vistkerfi í náttúru okkar. Þekkt er þegar Danir breyttu heiðum á Jót- landi í umfangsmikil skógræktarsvæði eftir að þeir töpuðu seinni Slésvíkurstyrjöldinni við Prússa 1864. Eftir umdeilt brottnám barrtrjáa mátti víða sjá ummerki skógarhöggs.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98

x

Skógræktarritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.