Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 39

Skógræktarritið - 15.10.2010, Page 39
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201038 dökkblátt þegar það er þroskað, á öðru ári. Kven- plantan ber því samtímis græna 1. árs berköngla og þroskaða, dökkbláleita 2. ára berköngla. Neðri hluti köngulsins myndar smá brodd neðan á aldininu. Einiberið ilmar arómatískt, sérstaklega sundur tekið. Það er sætt, arómatískt og meira eða minna beiskt á bragðið.11, 12, 13, 14, 15 Rætur eru dreifðar og langar, því er erfitt að flytja eininn heim í garða, nema smáar plöntur, enda þótt ræturnar liggi venjulegast grunnt.11, 16 Einirinn myndar innræna svepprót, er yfirleitt myndast af þörungasveppum. Þeir mynda ekki sýnileg svepp- aldin.17 Þroskuð berin eru tínd seinni hluta sumars og fræin tekin úr þeim, geymd yfir veturinn á þurrum, köldum stað og síðan sáð að vori. Ekki má búast við mikilli spírun. Það má líka fjölga eininum með sveiggræðslu.16 Auðvelt er að fjölga honum með græðlingum,18 enda er honum nær eingöngu fjölgað þannig. Í tilraunum Evu G. Þorvaldsdóttur voru teknir græðlingar af sunnlenskum og norðlenskum klóni. Sunnlenska klónið rætti sig 61% og það norð- lenska 15%. Sama niðurstaða var með rótarfjölda á græðlingunum: sunnlenska klónið var með 4,3 rætur á græðlingi og það norðlenska með 2,3 rætur, að meðaltali. Ljóst er að þessi klón eru mismunandi arfgerðar. Hugsanlega voru rætingareiginleikar þess norðlenska lélegir á þeim árstíma sem græðlingarnir voru stungnir (í ágúst). Það er vel þekkt að mis- munur sé á rætingareiginleikum klóna. Rætingarefni hafði ekki áhrif á rætinguna og rætingarhormón virtist ekki bæta rótarmyndunina.2 Ein tegund fiðrildalirfa er bundin við eini, einifeti, en hann er fátíður og veldur engum skaða.17 Sitkalús hefur einnig lagst á eini.19 Einirinn er ljóselskur og vex í flestum landgerðum, svo sem í hrauni, melum, mólendi, skriðum, birki- kjarri, söndum og mýrum. Hann er frekar algengur í öllum landshlutum, nema í Rangárvallasýslu, vest- anverðri Skaftafellssýslu og Húnavatnssýslum.4, 20 Flóra Íslands telur að afbrigðið var. nana Willd. sé líklega algengara en aðaltegundin,15 en Robert P. Adams kallar þetta afbrigði var. saxatilis Pall., en hann hefur rannsakað eini um allan heim frá 1966 og safnað yfir 5000 eintökum af honum.1 Einir með fyrsta árs berkönglum.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.