Skógræktarritið - 15.10.2010, Qupperneq 40

Skógræktarritið - 15.10.2010, Qupperneq 40
39SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010 Ýmiss fróðleikur um eini Einir hefur frá ómuna tíð verið notaður til margra hluta. Þurrkuð einiber, þ.e. drógurinn, inniheldur 0,8 – 1,6% af rokgjarnri olíu, einiberjaolíunni, en á suðlægari slóðum hafa berin hærra hlutfall olíu en á norðlægari slóðum, 20 – 40% af sykrum, biturefnið júniperín, vax, harpix og mismunandi lífrænar sýrur svo sem maurasýru, edikssýru og eplasýru. Vegna mikils sykurinnihalds er bruggað og eimað brenni- vín eða sénever úr berjunum og í einiberjaolíunni er l-terpinen-4-ol, sem virkar sótthreinsandi. Erlendis eru berin uppskorin á þann hátt að plönturnar eru hristar, við það falla þroskuðu berin niður á dúka, sem eru breiddir út undir plönturnar og eru látin þorna. Drógur til lyfjagerðar kom aðallega frá Ítalíu og Ungverjalandi.21 Fyrir 3500 árum notuðu Forn-Egyptar eininn sem lyf, til að sótthreinsa með og einnig notuðu þeir olíuna til þess að smyrja með henni lík. Bæði Grikkir og Rómverjar notuðu einnig eini á sama hátt. Hinn gríski Hippokrates og Rómverjinn Plinius mæltu með notkun einis við mjög mörgum sjúkdómum. Ætla má að sá einir sem vex í dag hafi sömu eigin- leika eins og sá sem er talað um í fornum hand- ritum. Gömul heimild um lækningamátt einiberja á íslensku er prentun á hluta handrits frá 1669 sem er líklega endurrit og þýðing á Liber Herbarum eftir Henrik Harpestræng lækni og kórbróður, sem fædd- ist í Danmörku á síðari helming 12. aldar og lést árið 1244. Í þessu riti segir, nokkuð stytt: „Styrkia heilann, giora gott sinne,.......... hreinsa briost, klara Raust, kyrra maga vind, hreinsa mag- ann, styrkia magann, styrkia matar melltu, briota nyrna og blodrustein,........þes oleum er gott vid köldu“. 22 bls. 156 Elsta heimild sem ég fann um dróginn, fructus Juniperi, er í danskri lyfjaskrá frá 1805, þágildandi hér á landi 23. Í Pharmacopoea Danica 1868 eru aðeins skráð einiber, fructus Juniperi og einiberjaolía, aether- oleum Juniperi. Eina lyfið, sem m.a. inniheldur einiber, er hægðalyfið Species pro Thea amara – Bit- terte.24 Þetta lyf var á skrá síðast í Pharmacopoea Danica 1933.25 Einiberið var einnig notað sem þvag- ræsilyf í formi seyðis 26. Það eina sem ég komst í tæri við á mínum lyfjafræði-starfsvettvangi, sem innihélt eini/einiberjaolíu, var „Sjöfaldur gigtaráburður – Linimentum ammoniae terebinthinatum FDA 50“.27 Hér hefur einir verið notaður í margar aldir í grasa- lækningum og nú á síðari tímum eru það aðallega berin og nýtt barr sem eru notuð. Það væri að æra óstöðugan að telja upp allt það, sem hann er notaður Kvenplanta með fyrsta og annars árs berkönglum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98

x

Skógræktarritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.