Skógræktarritið - 15.10.2010, Side 88
87SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010
ingar og þúsundir landsmanna byggja bústaði á
landsbyggðinni þar sem mikil ræktun er stunduð.
• Með stofnun Yrkjusjóðsins hefur æsku landsins
gefist kostur á að gróðursetja tré og með þeim
hætti fá þúsundir ungmenna í grunnskólum lands-
ins tækifæri til að afla sér reynslu og þekkingar á
mikilvægi þess að rækta og bæta landið. Á hverju
ári hafa um 100 grunnskólar og 7-8 þúsund ung-
menni tekið þátt í þessu starfi.
• Með skógarlundum víðsvegar um landið hafa
skógræktarfélögin skapað mikilvæga aðstöðu til
fjölbreyttrar útivistar öllum til yndisauka. Þúsund-
ir nýta sér skógræktarsvæði landsins til afþreying-
ar og andlegrar og líkamlegrar heilsubótar. Þetta
starf heldur áfram í Landgræðsluskógaverkefninu
með góðum stuðningi stjórnvalda og Alþingis.
• Með stofnun og starfi Kolviðar vill félagið leggja
sitt af mörkum til að Ísland geti staðið við mark-
mið sín í loftslagsmálum. Aukin skógrækt á Ís-
landi, sem einu sinni var skógi vaxið, er eitt af því
sem hægt er að gera til að sporna við losun kol-
tvísýrings út í andrúmsloftið.
• Með aukinni skógrækt verður til sjálfbær auðlind
sem þjóðin getur nýtt um ókomnar kynslóðir bæði
til efnahagslegrar og andlegrar uppbyggingar.
• Skógrækt er nú stunduð í öllum hlutum landsins.
Hún hefur jákvæð áhrif á byggðaþróun og með
henni dafna tækifæri í ferðaþjónustu auk þess sem
hún skapar tækifæri til nýrra atvinnuhátta, s.s.
þróunar á timburafurðum.
Þrátt fyrir þennan árangur eru enn mörg verk að
vinna:
• Til að stuðla að útbreiðslu náttúrulegra skóga er
nauðsynlegt að draga enn úr lausagöngu búfjár.
Skógræktarfélag Íslands þarf enn að berjast fyrir
því að búfjárhald lúti eðlilegum takmörkunum
svo land grói sem mest upp með sjálfgræðslu.
Taumlaus beit og lausaganga búfjár á að heyra
fortíðinni til.
• Skipulagsmál hafa verið ofarlega í hugum margra
skógræktarfélaga. Á þenslutíma síðustu ára hafa
mörg aðildarfélög orðið fyrir barðinu á þeirri
miklu útþenslu sem mörg sveitarfélög stóðu að. Í
skipulagslögum eru skógræktarsvæðin ekki skil-
greind sérstaklega heldur hafa þau skilgreininguna
„Opin svæði til sérstakra nota“. Þessi óljósa skil-
greining hefur ekki reynst fela í sér neina vörn
þegar á hefur reynt og því hafa mörg aðildarfélög
þurft að glíma við að verja rétt sinn. Nýleg skóg-
ræktarsvæði hafa vikið fyrir útþenslu byggðar sem
hefði verið unnt að koma fyrir með öðru móti.
• Komið hefur í ljós að réttarstaða nýmarka og
skógræktarsvæða er mjög veik hvort sem litið er
til skipulagslaga, skógræktarlaga eða náttúru-
verndarlöggjafar. Nauðsynlegt er að styrkja stöðu
skógræktarsvæða þannig að slíkir árekstrar heyri
sögunni til í framtíðinni. Almannahagsmunir eiga
þar að vera í fyrirrúmi en ekki stundarhagsmunir
og skammtímasjónarmið.
• Mikilvægt er að stuðla að því að sem flestir, sem
áhuga hafa, geti stundað skógrækt sér til yndis-
auka og þjóðinni til framdráttar. Halda þarf áfram
að gera skóga á vegum aðildarfélaganna aðgengi-
lega fyrir almenning.
• Efla þarf skilning á gildi skóga og meðvitund um
þær gróðurfarsbreytingar sem eru að verða m.a.
vegna breyttra atvinnuhátta og loftslagsbreytinga.
Einnig þarf að breiða út þekkingu á umhirðu
skóga og leiðum til að auka líffræðilega fjölbreytni
þeirra og yndi sem fólk hefur af þeim. Fræðandi
umræða er vísasta leiðin til að auka þekkingu og
efla þarf enn frekar útgáfustarf félagsins og miðlun
eftir rafrænum leiðum.
Skógræktarfélag Íslands vill á þessum tímamótum
þakka þeim aðilum sem lagt hafa starfi félagsins og
aðildarfélaganna lið á undanförnum árum. Þar ber
fyrst að þakka þeim fjölmörgu félagsmönnum sem
með stuðningi og hvatningu leggja félagastarfinu
liðsinni sitt með ýmsum hætti og starfi hundruða
stjórnarmanna í þeim 60 félögum sem starfa um
landið. Allt það starf verður seint metið til fjár.
Einnig vill félagið þakka stjórnvöldum og Alþingi
fyrir þann stuðning sem félagið og skógræktar-
hreyfingin hefur fengið á undanförnum árum og góð
samskipti um málefni skógræktar í landinu. Þá vill
félagið þakka þeim einstaklingum, fyrirtækjum og