Skógræktarritið - 15.10.2010, Síða 94
93SKÓGRÆKTARRITIÐ 2010
Höggvin jólatré 2009
sumarstarfsfólk hjá skógræktarfélögum og fleiri
skógræktarverkefnum. Upplýsingar um sjálfboða-
liðastarf eru ófullkomnar og liggja ekki fyrir en eru
áætlaðar eftir bestu vitneskju vísustu manna og taka
að einhverju leyti mið af áðurnefndri vanskráningu
sumarvinnufólks.
Almennt
Hér hefur verið gerð örstutt grein fyrir nokkrum
helstu kennitölum skógræktarstarfsins fyrir árið
2009 og hvaðan þær upplýsingar koma. Sem fyrr eru
þær þeim takmörkunum háðar, að vitað er að fleiri
aðilar, en hér eru færðir til bókar, stunda skógrækt
eða skylda starfsemi og upplýsingar vantar um ein-
stök atriði skógræktarstarfsins frá fjölmörgum að-
ilum.
Að lokum vill höfundur þakka þeim fjölmörgu
forsvarsmönnum skógræktarverkefna og gróðrar-
stöðva sem hafa góðfúslega látið í té upplýsingar
fyrir þessa samantekt. Einar Örn Jónsson aðstoðaði
við öflun gagna frá gróðrarstöðvum og Ragnhildur
Freysteinsdóttir las yfir texta og kann ég þeim bestu
þakkir fyrir.
Afurð Skógrækt ríkisins Skógræktarfélög*
Bolviður, birki (m3) 5
Bolviður, lerki (m3) 12
Bolviður, greni (m3) 617
Bolviður, ótilgr. (m3) 35
Fiskhjallatrönur/spírur (m3) 74
Borð og plankar, lerki (m3) 15 27
Borð og plankar, birki (m3) 2
Borð og plankar, annað (m3) 2
Viðarkurl (m3) 394 100
Arinviður (tonn) 317 54
Reykingarviður (kg) 2180
Girðingarstaurar (stk) 587
Viðarplattar (stk) 1112
Viðarkol (kg) 0
* Aðeins bárust upplýsingar frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga og Reykvíkinga.
Viðarframleiðsla 2009
Aðili Stafafura Rauðgreni Sitkagreni Blágreni Fjallaþinur Tegund óskilgr. Alls jólatré
Skógræktarfélög* 2.799 1.076 434 500 62 2.404 7.275
Skógrækt ríkisins 596 1.308 212 1.144 38 3.298
Héraðsskógar 383 13 0 31 1 4 432
Alls 3.778 2.397 646 1.675 101 2.408 11.005
Hlutfall af heild 34,3% 21,8% 5,9% 15,2% 0,9% 21,9% 100,0%
* Upplýsingar vantar frá allmörgum skógræktarfélögum, þar á meðal frá nokkrum sem selja töluvert af jólatrjám.