Skógræktarritið - 15.05.2011, Qupperneq 12

Skógræktarritið - 15.05.2011, Qupperneq 12
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201110 Sjálfsáinn reyniviður. Um miðja öldina sem leið áleit mikill hluti þjóðar- innar að tré gætu ekki vaxið á Íslandi, nema ef til vill í görðum og þá helst þar sem skjóls og yls nyti frá húsveggjum. Langt fram eftir öldinni var kennt í helstu skólum landsins að íslenskur jarðvegur væri ófrjór, vegna þess að veðurfar hér á landi væri svo kalt að lítil sem engin efnaveðrun ætti sér stað í berginu og auk þess rotnuðu lífrænar leifar plantna og dýra seint, en hvort tveggja er nauðsynlegur undanfari jarðvegsmyndunar. Það gróðurfar sem víðast hvar blasti við, eyðisandar, melar, rofabörð, lyngmóar og, þar sem best lét, kræklóttur kjarr- gróður, kom vel heim við þessar kenningar og enn telja margir þetta óspillta íslenska náttúru. Nú hafa nýjustu rannsóknir aftur á móti sýnt fram á að ís- lenski eldfjallaberggrunnurinn veðrast hratt og ber- ist honum nægilegt magn lífrænna leifa og súrefnis sjá örverur, sveppir og smádýr jarðvegsins um að byggja upp frjósama gróðurmold. Ekkert er vitað með vissu um uppruna flóru Ís- lands. Annars vegar eru kenningar um að allt landið hafi verið hulið jökli á seinasta jökulskeiði ísaldar og að allur gróður hafi borist hingað eftir að hlýna tók í veðri. Hins vegar benda ýmis rök til þess að hluti flórunnar hafi hjarað á jökulskerjum og öðrum íslausum svæðum. Raunar skiptir þetta litlu máli því að vitað er að landið greri hratt upp þegar jökull- inn hörfaði og varð snemma algróið, nema hæstu fjöll. Þessi frumgróður landsins var svalviðrisgróður og enn er meginhluti flórunnar svalviðristegundir. Töluvert af varmakærari tegundum hefur síðar borist til landsins, en hvort tveggja er að landið er einangrað langt úti í hafi og það er erfitt fyrir nýjar tegundir að setjast að og breiðast út í fullgrónu landi. Flóra landsins er því mun fábreyttari en land- kostir bjóða upp á. Nú er ekkert vafamál lengur að fjölbreyttir skógar geta vaxið á Íslandi. Margar þeirra trjátegunda sem reynst hafa best þroska hér fræ og sjálfsáðir afkom- endur þeirra eru víða að komast á legg. Enn vitum við ekki hvernig náttúrulegir framtíðarskógar lands- ins munu verða. Vafalaust verða þeir margskonar, allt eftir aðstæðum á hverjum stað, en í ungskóg- inum, sem er að vaxa upp í flóðfarinu í Elliðaárdal, má eygja vísi að því gróðurfari sem íslensk náttúra kýs sjálf að skrýðast. hvað sem uppgræðslu þess líður þá er fjölbreyttur runna- og trjágróður að vaxa þarna upp og allt stefnir í þá átt að innan örfárra áratuga verði það vaxið samfelldum skógi. Hér verður hægt að fylgjast með hvernig náttúrulegur skógur vex upp á stað þar sem bæði innlendar og flestar algengustu innfluttu trjátegundirnar leggja til fræ. Trjáplönturnar standa víða mjög þétt og hefst því fljótlega hörð samkeppni milli bæði einstaklinga og tegunda. Aldrei áður hefur verið unnt að fylgjast með samkeppni í fjöl- breyttum ungskógi þar sem trjáplöntunum var ekki komið fyrir af yfirlögðu ráði heldur hafa þær vaxið upp ýmist af rótarsprotum eða þar sem fræ féllu af tilviljun á staði þar sem ungplöntur áttu möguleika á að vaxa úr grasi. Hér verður hægt að fá ómetanlegar vísbendingar um hvers konar skógar geta vaxið hér upp við þær aðstæður sem íslensk náttúra býður upp á.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Skógræktarritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.