Skógræktarritið - 15.05.2011, Qupperneq 17
15SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011
(upplýs. frá Skogfrösentralen í Hamar), en vitað er
að það kom til Noregs frá Skotlandi fyrir 300 árum.
Meðal góðu trjánna af kvæmunum frá Celerina,
Törbel og Sandvika eru einnig fullt af viðrinum,
bugðóttum trjám og runnakræklur. Augljóst er að
enn er langt í að fáist upp jöfn og falleg tré af einu
góðu kvæmi af evrópulerki.
Tvö evrópulerkitré í Múlakoti
Til eru tvö eldri tré af kvæminu frá Celerina, ættuð úr
1780 metra hæð, sem standa í trjásafninu í Múlakoti.
Til þeirra var sáð árið 1972 á Tumastöðum. Þau eru
orðin vel yfir 15 metra há, með þráðbeinan trjástofn
og dæmigerða breiða evrópulerkiskrónu. Fræmynd-
un er komin vel af stað á þeim og ekki eftir neinu
að bíða að sækja sér íslenskt evrópulerkisfræ. Fræ af
þessum trjám spíraði vel í Nátthaga árið 2010.
Næstu ár eftir 1972 var sáð fleiri kvæmum ættuð-
um úr háfjallaskógum Graubünden í Austur-Sviss,
en þau virðast hafa misfarist mjög mikið eða alveg
í mörgum köldum árum frá 1979–1995. Sumarið
1993 lifir lengi í minningunni, enda fraus allmikið
á mörgum stöðum sunnanlands um 25. júlí og aftur
10. ágúst. Má nærri geta, að frost í miðjum mesta
vextinum þegar frostþol er ekkert, hefur stórskaðað
og jafnvel steindrepið plöntur, sérstaklega ung tré
sem voru rétt að byrja að hækka upp fyrir gróður-
lagið í kring. Slíkar hremmingar henda alltaf aftur,
en með almennri hlýnun loftslagsins síðustu 15 árin
verður vonandi lengra á milli þeirra.
Margt annað en veðrið hefur áhrif á hversu vel
samanburðartilraun heppnast, til dæmis forræktun
á plöntum, ástand plantna við gróðursetningu,
gróðursetningarstaðir, gróðursetningartími, þurrkar
eftir gróðursetningu, jarðvegur og lega tilraunareita.
Sams konar tilraun getur verið að mestu mislukkuð á
einum stað, en vel lukkuð á öðrum og munur kemur
einnig ósjaldan í ljós milli landshluta.
Alpafjöll
Höfundur ferðaðist um Alpafjöllin í þrígang, haustin
2007, 2009 og 2010, í þeim tilgangi að reyna að fá
tilfinningu fyrir hvernig skógarnir eru uppbyggðir
og tegundasamsettir frá trjámörkum og niður í
dalbotna. Einnig var markmiðið að skoða og safna
nýjum kvæmum af evrópulerki sem næst skógar- og
trjámörkum, í von um að finna kvæmi sem gefi jafn-
sterkari plöntur fyrir okkar skilyrði. Áðurnefndar
tilraunir sýna að það er ekki auðvelt verk. Sennilega
verður alltaf gríðarlegur breytileiki innan hvers
kvæmis gagnvart íslenskri ljóslotu.
Alpafjöllin eru að mestu á milli breiddargráðanna
44°–47° norður, en Ísland á milli ca. 63°25'–66°30'
norður. Augljóst er að ljóslotan er mjög frábrugðin.
Nægilega löng nótt til að framkalla vaxtarstopp
í tíma hjá evrópulerkinu kemur miklu fyrr í Alpa-
fjöllum við skógarmörk, sennilega um 15. ágúst.
En sama næturlengd er varla komin hérlendis fyrr
en tveimur til fjórum vikum seinna. Flest trjánna
hafa þar af leiðandi miklu styttri tíma hérlendis til
að ljúka vexti og herða sprotana sína fyrir fyrstu
alvarlegu haustfrost. En eins og áður sagði eru vís-
bendingar um að háfjallakvæmin gefi fleiri tré með
góðu vaxtarlagi, beinum trjástofnum, af því fleiri
tré úr efstu hæðarlögum skógarins verða síður fyrir
haustkalsskemmdum hérlendis. Meðalsumarhitinn
lækkar eftir því sem ofar dregur í fjöllum og haust-
frost eru einnig fyrr á ferðinni.
Ástæður fyrir því að höfundur álítur að endur-
teknar prófanir á kvæmum evrópulerkis úr lægri
Ung lerkiplanta við skógarmörk í Alpafjöllum er með
beinan, heilan toppsprota og tilbúin fyrir veturinn.
Vaxtarstopp í heimkynnum kemur tímanlega.