Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 25

Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 25
23SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011 búning fyrir veturinn. Breytt framleiðsluaðferð á evrópulerki þarf að draga fram plöntur sem hegða sér á þennan hátt við íslenska ljóslotu. Evrópulerki og „náttúruleg“ framleiðsluaðferð Sennilega er til of mikils mælst að framleiða evr- ópulerki í heil sex ár áður en það er afhent til út- plöntunar í skógrækt. Fyrir smásölu á garðaplöntum er 6 ára framleiðslutími á trjám, sem eiga að verða stór og myndarleg, alvanalegur bæði hérlendis og erlendis. En í skógrækt er óskað eftir tugþúsundum plantna í einu. Eftirfarandi framleiðsluaðferð er nálgun höf- undar að óskum skógarbænda, að búa til ódýrari plöntur um leið og haustkalssæknustu plönturnar eru vinsaðar úr. Til þess þarf lágmark tvo vetur og tvö sumur í framleiðsluferlið og tæknilega inngripið, skyggingu, má alls ekki nota. Fyrir evrópulerki og myrkárþöll er beinlínis nauðsynlegt að kalla fram alla þá einstaklinga sem vaxa of lengi fram á haust, láta þá sem sagt haustkala, svo þeim verði hent strax! Lengri framleiðslutími kallar einnig á að nota fjölpotta með stærri hólf, til dæmis þrjátíu og fimm eða fjörutíu hólfa bakka, svo að stærri plöntur hafi nægilegt pláss fyrir vöxt sinn í tvö ár. Náttúrulegt framleiðsluferli: 1. Sáning í apríl og uppeldi í köldu húsi fram á haust. Plönturnar eru látnar vaxa ótruflaðar allt sumarið, en þó priklað strax í þau hólf sem ekkert spíraði í byrjun. 2. Í nóvember er allur vöxtur löngu stopp, en í köldu plasthúsi hefur frosið innandyra miklu fyrr. Einhverjar plöntur hafa því haustkalið. 3. Á þessu stigi kemur tvennt til greina, að yfir- vetra plönturnar fyrsta veturinn inni í plast- húsinu eða flytja þær út í karma og byrgja með hvítu byggingaplasti. 4. Næsta vor eða þegar færi gefst eftir mestu vor- annirnar, er farið í gegnum bakkana og öllum plöntum hent sem eru greinilega skemmdar af kali og öðrum orsökum. 5. Í stærri hólfum má vera að rótin á lerki sé ekki búin að fylla nógu vel út í hólfið, þannig að Kort: Ragnhildur Freysteinsdóttir

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.