Skógræktarritið - 15.05.2011, Síða 48

Skógræktarritið - 15.05.2011, Síða 48
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201146 hugsunin var að mynda rjóður. Ég er afar ánægð að þetta markmið náðist enda skapa þessi opnu svæði fjölbreytni og nýtast nú vel. Það má segja að ég hafi verið að mestu búin að gróðursetja í reitinn árið 1989 og eftir það hefur þetta meira verið þannig að við höfum verið að flytja plöntur og bæta við ein- staka plöntum“. Grisjun ekki síður mikilvæg „Það má eiginlega segja að nú sé aðalvinnan hjá Magnúsi en hann sér alfarið um að grisja“. „Já, það má til sanns vegar færa“ segir Magnús „ég fékk mér vélsög fyrir nokkrum árum og hef varla undan en um leið kemur það sér vel að fá eldiviðinn því að við erum með kabissu þar sem við bæði eldum og bök- um brauð. Við erum því farin að hafa beinan arð af ræktuninni svo ég tali nú ekki um skjólið sem hér er komið. Nú er hér alltaf logn, sem ekki var áður. En ég hef lært það að sumstaðar er gott að hafa skóginn þéttan, bara eins og vegg sem stöðvar norðannepj- una sem stundum leggur hér inn Skagafjörðinn, en annars staðar þarf að losa um trén og lofa ein- staklingunum að njóta sín. Það fylgir því heilmikil vinna að sinna umhirðunni og í raun hefði maður þurft að byrja fyrr, allt vex svo hratt að maður hefur varla undan. Hér næst bústaðnum hef ég verið að fella stór tré svo við fáum svigrúm til að njóta sólar á pallinum, en allt þarf þetta að gerast með varfærni og langtímahugsun“. „Svo eru komnir hér gestir sem una vel við sitt í skóginum, hér er mikið fuglalíf, þrestir, auðnutitt- lingar, maríuerlur og ein rjúpa held- ur sig hérna árlega og kemur upp ungum. Þannig að það er ýmislegt sem ræktunin hefur fært okkur, ekki síst á síðari árum þegar við njótum afrakstursins. En svo er það náttúru- lega hestamennskan sem hér er mikið stunduð og er kapítuli út af fyrir sig en allt fer þetta vel saman sé öllu til haga haldið“. Pétursskógur En skógurinn í Skjóli á sér líka aðra hlið. Bróðir Magnúsar, Pétur Óli að nafni, hefur um árabil staðið fyrir ferðum til Pétursborgar. Pétur Óli hefur skipulagt tvær ferðir fyrir Skóg- ræktarfélag Íslands. Önnur ferðin var farin til Arkangelsk við Hvítahafið og Pétursborgar árið 2006 en hin ferðin var skipulögð þvert yfir hnött- inn alla leið til Kamtsjatka árið 2008. Ferðir þessar tókust með afbrigðum vel og var það að samkomu- lagi að ferðafélagar úr ferðunum kæmu í heimsókn á Vindheima og gróðursettu „Pétursskóg“ honum til heiðurs fyrir afskaplega eftirminnilegar og vel heppn- aðar ferðir. Áhugafólk sem farið hefur í ofangreindar ferðir til Rússlands hefur komið í tvígang í Skagafjörð og gróðursett um þúsund trjáplöntur í hvert skipti. Að gróðursetningu lokinni hefur fjölskyldan í Skjóli ásamt Pétri Óla boðið til herlegrar veislu. Í þessum heimsóknum í Skjól hefur hópur ferða- félaga bæði endurnýjað gömul kynni og rifjað upp eftirminnilegar stundir frá þessum ferðum og ekki síst notið mikillar gestrisni staðarhaldara. Um ofan- greindar ferðir hefur verið skrifað í Skógræktarritið en Skógræktarfélag Íslands hefur haft það að mark- miði að kynna skóga, skógrækt, náttúru og menn- ingu annara landa en með þeim hætti er enn frekar hægt taka það sem vel gefst til fyrirmyndar. En þannig hafa þessi kynni tekist með hjónunum í Skjóli, sem hafa nú ásamt Pétri Óla uppi enn stærri áform um skógrækt, enda virðast skilyrði til ræktun- ar á þessum slóðum vera með því besta hér á landi. „Við erum náttúrlega mjög ánægð með þennan litla reit okkar í Skjóli en svo verður maður líka að huga að því að skapa eitthvað fyrir næstu kyn- slóð“ segir Hildur að lokum um leið og hún bætir í kaffibollann hjá höfundi og færir upp á diskinn volgt nýbakað brauð. Við upphaf á gróðursetningu í Pétursskóg, grillir í Skjól í baksýn. Mynd: RF
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.