Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 53
51SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011
og með talningu umferðar. Gögnum á staðnum var
safnað á meðal notenda Heiðmerkur frá júlímánuði
2008 út septembermánuð 2009.5 Í hverjum mánuði
voru valdir 2 til 4 úrtaksdagar á tilviljanakenndan
hátt eftir því hvort um vetrar- eða sumarmánuði
var að ræða. Tímasetningar innan hvers úrtaksdags
voru einnig valdar með tilviljanakenndum hætti að
því gefnu að 4 klukkustunda samfellt tímabil í dags-
birtu næðist. Notendur voru stöðvaðir á leið sinni
frá svæðinu á öllum mögulegum útgangsleiðum
Heiðmerkur, þ.e. við Maríuhella, á Maríuvöllum,
við Helluvatn og við Vífilsstaðavatn, og þeir beðnir
um að taka þátt í spurningakönnun sem þeir fylltu
sjálfir út (myndir 1 og 2). Með þessum hætti feng-
ust um það bil 2500 útfylltar kannanir og var þátt-
tökuhlutfallið 67%. Út frá svörum notenda er síðan
hægt að meta ferðakostnað þeirra með tilliti til
ferðamáta og vegalengdar frá heimili. Þátttakendur
voru spurðir hversu oft þeir heimsóttu Heiðmörk í
almanaksmánuðinum á undan, þ.e. ef þátttakandi
var stoppaður í apríl var hann spurður um notkun
sína í mars, hvar þeir væru búsettir, hversu löngum
tíma þeir hefðu varið þennan daginn í Heiðmörk,
hvað þeir hefðu aðhafst á svæðinu, hvernig þeir
hefðu komist á svæðið þennan daginn o.s.frv. Á
meðal áhugaverðra staðreynda um notendahópinn
úr könnununum má sjá eftirfarandi atriði:
• rúmlega 97% þátttakenda búa á höfuð-
borgarsvæðinu,
• meðalvegalengdin sem þeir þátttakendur
sem búa á höfuðborgarsvæðinu ferðast fram
og til baka er 18,8 km og staðalfrávikið er
10,52 km,
• 73% þátttakenda koma 4 sinnum eða
sjaldnar á svæðið á undangengnum alman-
aksmánuði, sem er jafnframt meðalnotkun
notenda,
• 90% þátttakenda koma 10 sinnum eða
sjaldnar,
• 2,2% þátttakenda koma 25 sinnum eða
oftar í mánuði,
• 92,2% þátttakanda ferðast til Heiðmerkur
með bíl,
• 44% þátttakenda segjast hafa stundað aðrar
frístundir en göngu, skokk, hjólreiðar, bíltúr
eða að fara á hestbak. Sem dæmi um þessar
frístundir má nefna berja- og sveppatínslu,
skíðagöngu og lautarferðir.
Þrátt fyrir að mörg skref hafi verið tekin til þess
að tryggja að framangreind úrtaksaðferð næði til
allra notenda Heiðmerkur var sú ekki raunin.5
Erfiðlega reyndist að ná til einstakra notendahópa,
t.d. hlaupara, hjólreiðamanna og hestamanna þar
sem nánast ógerlegt var að stoppa þá. Jafnframt er
ljóst að þeir notendur sem búa t.d. á jaðarsvæðum
Kópavogs gætu mögulega farið fótgangandi um
svæðið án þess að lenda í úrtaki á þeim 4 stöðum
þar sem notendur voru stoppaðir. Því var gripið til
þess ráðs að taka 4000 manna tilviljanakennt úrtak
úr viðhorfshópi Capacent og þeim send netkönnun.
Fékk það úrtak sambærilegar spurningar og þeir
notendur sem tóku þátt í ferðakostnaðarkönnuninni
í Heiðmörk að því frábrugðnu að í netkönnuninni
var spurt um notkun á ársgrundvelli. Netkönnunin
eykur ekki bara þekkinguna um notendahópinn og
Mynd 1. Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir stöðvar vegfar
endur við Maríuhella í Garðabæ.
Mynd 2. Karl Njálsson stöðvar vegfarendur við Vífilsstaða
vatn í Garðabæ.