Skógræktarritið - 15.05.2011, Blaðsíða 55
53SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011
Virði skógarins
Markmið þessa þáttar var að meta verðmæti skóg-
arvistkerfisins í Heiðmörk. Þeir þjónustuþættir sem
metnir voru, eru taldir upp hér að neðan:
1. afurðir skógarins sem flokkast í viðarnytjar
og aðrar nytjar svo sem sveppi og ber,
2. stýri- og stoðþjónusta, s.s. binding kolefnis úr
andrúmsloftinu,
3. umgjörð til tómstunda og útivistar.
Mat á efnislegum afurðum skógarins skiptist í
viðarnytjar og aðrar nytjar svo sem ber og sveppi.11
Viðarnytjar skiptast í jólatré, trjákurl, bolvið og
eldivið og voru beinar sölutekjur af þessum af-
urðum rúmlega 12 milljónir króna árið 2009. Þar
sem þessar afurðir eru seldar beint á markaði má
nýta sér markaðsvirði þeirra við verðmætamat. Þó
ber að geta þess að þar sem fjölskyldur fara saman
að höggva jólatré eru verðmæti fólgin í athöfninni
sem markaðsverð telur ekki. Því gefur markaðs-
virði í slíkum tilfellum ákveðið lágmarksvirði. Aðrar
vinsælar nytjar skógarins eru ber og sveppir. Virði
þeirra er metið á þríþættan hátt. Í fyrsta lagi er út-
breiðsla berja og sveppa metin á svæðinu (inven
tory analysis) á 350 tilviljanakenndum punktum. Á
hverjum punkti var þekja berja og berjarunna metin
auk þéttleika sveppategunda. Út frá þessum mæl-
ingum var meðalþekja og meðalþéttleiki innan hvers
landflokks fundin. Niðurstöður sýna að krækilyng,
aðalbláber, bláber, hrútaber og jarðaber er að finna
í Heiðmörk auk fjölmargra tegunda matsveppa. Í
öðru lagi var stuðst við raunmælingar á magni berja
og sveppa sem safnað var í Heiðmörk, en samhliða
ferðakostnaðarkönnuninni voru vegfarendur sem
stöðvaðir voru á svæðinu spurðir hvort þeir hefðu
verið að tína ber eða sveppi og ef svo væri hvort
rannsóknaraðilar mættu vigta afurðirnar. Í lang
flestum tilvikum var um lítið magn að ræða eða
minna en 1 kg, en þó voru einstaka þátttakendur
með umtalsvert magn og þá sérstaklega af sveppum.
Í þriðja lagi verður stuðst við ferðakostnaðarkönn-
unina til að meta útivistar- og tómstundagildi þess
að tína ber og sveppi. Athygli vekur að af þeim
rúmlega 2000 manns sem svöruðu könnuninni á
tímabilinu júlí 2008 til september 2009, að undan-
skildum vetrarmánuðunum, höfðu að meðaltali 5%
svarenda tínt sveppi en 10% tínt ber.11
Mat á bindingu kolefnis úr andrúmsloftinu er
byggt á nýlegri úttekt á skóginum í Heiðmörk sem
gerð var í tengslum við aðalskipulag Reykjavíkur
og nákvæmum gögnum um gróðursetningu frá
Skógræktarfélagi Íslands. Niðurstöður rannsókna
sem framkvæmdar voru árið 2008 sýna 15 að stærð
skógarins í Heiðmörk er rúmlega 12 þúsund m3 en
lífmassi hans er rúmlega 11 þúsund tonn. Að meðal-
tali vex skógurinn um 18,80% á ári í rúmmetrum
talið en 17,36% á ári í tonnum talið. Gefa þessar
tölur til kynna að skógurinn sé á þeim stað í vaxtar-
ferli sínum þar sem hann vex tiltölulega hratt. Út
frá stærð og vexti skógarins má gera ráð fyrir að
kolefnisbindigeta hans árið 2008 hafi verið 5700
tonn en viðbót ársins 2008 var 1190 tonn. Á fyrri
hluta ársins 2008 var meðalverð á kolefnistonni á
Evrópumarkaði 24 evrur og á seinni hluta ársins
2008 var meðalverðið 22 evrur.3 Út frá þessu meðal-
verði og gengisskráningu Seðlabanka Íslands á evru
fyrir sömu tímabil er verðmæti kolefnisbindingar
skógarins í Heiðmörk árið 2008 á bilinu 16 til 17,5
milljónir króna.
Rodalon®
-utanhúss
• Fyrir sólpalla og gangstéttar
• Garðhúsgögn og tjöld
• Sumarbústaði
Eyðir bakteríum, ólykt,
sveppagróðri og mosa
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 • Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Fæst í apótekum