Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 56

Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 56
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201154 Framangreint mat byggir aðeins á bindigetu skóg- arins árið 2008 og er því einungis um punktmat að ræða. Til þess að hægt sé að meta heildarverðmæti skógarins með tilliti til framtíðar kolefnisbindigetu þarf að liggja fyrir áreiðanleg aldursgreining á skóg- inum til þess að hægt sé að meta þá viðbótar bindi- getu sem skapast á hverju ári með vexti skógarins. Verið er að aldursgreina skóginn í Heiðmörk og að því loknu má meta núvirtan ábata af framtíðar kol- efnisbindingu hans. Mat á þeim verðmætum sem skógurinn skapar sem umgjörð til útivistar eru innifalin í ferðakostnaði notenda. Virði Elliða- og Vífilsstaðavatns Markmið þessa verkþáttar var að meta verðmæti þjónustu vatnanna, Elliðavatns og Vífilsstaðavatns. Vötnin eru uppspretta tómstundaiðkana svo sem veiði jafnframt því að vera búsvæði margra tegunda plantna og dýra. Elliðavatn er enn fremur uppi- stöðulón fyrir Elliðaárvirkjun og uppeldisstöð fyrir laxveiðiána Elliðaá. Jafnframt liggur fyrir að fjöl- margir skólar á höfuðborgarsvæðinu nota vötnin til kennslu. Þjónustuþættir vatnanna eru því fjölmargir. Fyrir Elliðavatn var virði eftirfarandi þjónustuþátta metið: 7 • virði efnislegra afurða, eða sá ábati sem hlýst af raforkuframleiðslu Elliðaárvirkjunar, • virði stuðnings og stýriþjónustu vatnsins sem byggist á (i) varnarkostnaði, það er verðmæti framkvæmda sem voru til þess fallnar að koma í veg fyrir að affall frá íbúahverfum renni út í vatnið og (ii) ábata virðisaukans sem Elliðavatn skapar fyrir lax- veiði í Elliðaá, • ábati vegna tómstundaiðkunar sem tengist veiði og er byggð á ábata veiðimanna, • ábati menntakerfisins af nýtingu svæðisins til kennslu, eða hið svokallaða menntagildi. Efnislegar afurðir Elliðavatns eru annars vegar tengdar raforkuframleiðslu Elliðaárvirkjunar og hins vegar afla veiðimanna. Þar sem meginástæða veiða í vatninu er ekki veiði til matar heldur fremur tómstundaiðkun, er virði efnislegra afurða aðeins byggt á raforkuframleiðslunni. Elliðavatn þynnir mengun frá íbúahverfum í nálægð vatnsins.

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.