Skógræktarritið - 15.05.2011, Side 66
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201164
það er ekki þar með sagt að hagsmunir skógræktar
skuli ávallt víkja. Skógræktendur eiga því að svara
gagnrýni en ekki láta sífellt undan. Telji t.d. einhver
að stórfelld hætta sé á spillingu útsýnis vegna skóg-
ræktar má benda þeim á að sú skoðun standist ekki
vegna þess að a) skógrækt sé svo takmörkuð um-
fangs að hún komi ekki til með að hafa mjög mikil
áhrif á útsýni og b) að skógar séu fallegir og skapi
sitt eigið landslag þar sem þeir vaxa. Að horfa á skóg
er ekki síður útsýni en að horfa á fjall.
Við ákvarðanatöku og í áætlanagerð um nýræktun
skóga eru allir þessir þættir og fleiri vegnir og metnir.
Sé vel að verki staðið ætti útkoman að verða sú að
líkurnar á að ná markmiðum skógræktar séu miklar,
að neikvæð áhrif á umhverfið og árekstrar við aðra
landnýtingu séu í lágmarki og að fólk sé almennt sátt
við skógræktina. Það þýðir sjaldnast að gengið sé að
ýtrustu kröfum á öllum sviðum, en oftast felst lítill
fórnarkostnaður fyrir markmið skógræktar í að taka
umtalsvert tillit til verndarsjónarmiða og skoðana
almennings. Það eru þrátt fyrir allt góð og gild rök,
bæði hagræn og verndarmiðuð, fyrir því að gróður-
setja ekki skóg á tilteknum stöðum eða nota ekki til-
teknar aðferðir. Skógræktendur eiga þó að taka tillit
til slíkra hluta af því að það er skynsamlegt en ekki
til að þóknast andstæðingum skógræktar.
Andstæðingar skógræktar eru ekki talsmenn al-
mennings. Þeir lýsa fyrst og fremst sínum eigin
skoðunum. Þeir verða líka seint sáttir. Viðleitni
skógræktenda til að koma til móts við þá breytir
engu um afstöðu þeirra til skógræktar. Gagnrýni
þeirra verður því að mæta með staðföstum rökum
og kröfu um sanngirni en ekki með eftirgjöf. Sátt við
andstæðinga skógræktar getur ekki verið markmið
skógræktenda. Sátt almennings við skógrækt er hins
vegar mikilvæg. Skógræktendur eiga því að halda
sínu striki og rækta sinn skóg, sjálfum sér til ánægju
og landi og þjóð til góðs.
Þakkarorð
Höfundur þakkar Aðalsteini Sigurgeirssyni fyrir
kveikjuna að þessari grein og Ragnhildi Freysteins-
dóttur og Hallgrími Indriðasyni fyrir yfirlestur og
góðar ábendingar
Heimildir
1. Áslaug Helgadóttir og Jónatan Hermannsson. 2003.
Verðmæti ræktunarlands. Rit Ráðunautafundar 2003.
Bændasamtök Íslands, Landbúnaðarháskólinn á Hvann-
eyri, Rannsóknastofnun landbúnaðarins: 12–16.
2. Grétar Guðbergsson. 1998. Hrís og annað eldsneyti.
Skógræktarritið 1998: 23–30.
3. Gunnlaugur Kristmundsson. 1958. Upphaf skipulags-
bundinnar sandgræðslu. Sandgræðslan: Minnzt 50 ára
starfs Sandgræðslu Íslands. Búnaðarfélag Íslands og
Sandgræðsla ríkisins, Reykjavík. Bls. 187–249.
4. Hákon Bjarnason. 1959. Fólksfjölgun og framtíðarnytj-
ar lands. Ársrit Skógræktarfélags Íslands 1959: 5–14.
5. Hákon Bjarnason og Þórarinn Benedikz. 1980.
Plægingar og plöntun skógar. Ársrit Skógræktarfélags
Íslands 1980: 47–49.
6. Hákon Bjarnason. 1983. Um barrviði og lauftré.
Morgunblaðið, 26.10.1983. Bls. 37.
7. Helgi Sigurðsson. 2009. „Sú kemur tíð, er sárin foldar
gróa“: Upphafsár skógræktar og sandgræðslu á Íslandi.
Ritgerð til M.A. prófs. Háskóli Íslands, Reykjavík. 175
bls.
8. Sigurður Blöndal og Skúli Björn Gunnarsson. 1999. Ís-
landsskógar, hundrað ára saga. Mál og Mynd, Reykja-
vík. 267 bls.
9. Skógræktarfélag Íslands. 2011. Skógrækt í sátt
við umhverfið. Af vefsíðu 22.03.2011: http://www.
skog.is/index.php?option=com_content&view=-
article&id=145%3Askograekt-i-satt-vie-umhverfie&ca-
tid=24%3Averkefni&Itemid=104.
10. Snorri Baldursson. 2011. Bráðnauðsynlegar breyt-
ingar á náttúruverndarlögum. Fréttablaðið, 22.02 2011.
Bls. 14.
11. Thröstur Eysteinsson and Sherry Curl. 2007. Strange
ideas: Subjectivity and reality in attitudes towards
afforestation in Iceland. Í (Gudmundur Halldorsson,
Edda Sigurdis Oddsdottir and Olafur Eggertsson eds.):
Effects of afforestation on ecosystems, landscape and
rural development. Proceedings of the AFFORNORD
conference, Reykholt, Iceland, June 18–22, 2005.
TemaNord 2007:508. Bls. 235–242.
12. Umhverfisráðuneytið. 2010. Tillögur að breytingum
á náttúruverndarlögum til umsagnar. Af vefsíðu 22.03
2011: http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1733.
13. Þórarinn Þórarinsson. 1974. Þjóðin lifði en skógurinn
dó. Ársrit Skógræktarfélags Íslands 1974: 16–29.
14. Þröstur Eysteinsson. 2010. Grisjun og sala viðar hjá
Skógrækt ríkisins. Ársrit Skógræktar ríkisins 2009:
26–33.