Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 68

Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 68
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201166 Háibjalli í Vogum Þegar ekið er vestur eftir Reykjanesbraut í átt til Keflavíkur og komið er framhjá Vogavegamótum gefur að líta í suðurátt trjáreit undir klettabelti. Það er skógræktin við Háabjalla í Vogalandi. Bjallinn er misgengi sem er austast af fimm misgengjum sem ganga út úr Vogastapa til suðvesturs. Skógrækt hófst við Háabjalla 1949 og er þar nú gróðursæll skógarreitur í eigu Skógræktar- og land- græðslufélagsins Skógfells. Eru hæstu trén allt að 17 m. Þangað er aðeins um hálftíma gangur frá Vogum og verður aðgengi þangað til fyrirmyndar þegar undirgöng undir Reykjanesbraut hafa verið opnuð.32 Veður, jarðvegur, gróður Veðurfar á Suðurnesjum er að sumu leyti hagstætt gróðri en að öðru leyti ekki. Meðalárshiti er meðal þess sem hæst gerist á landinu, en hitasveiflur litlar svo lítið er um heita daga og frost eru væg. Ef skoð- aðar eru veðurfarstölur yfir tímabilið 1971–1980, sem reyndar var nokkuð kaldur áratugur, er sumar- hitinn (meðalhiti júní-september) 9,0°C og með- alhámarkshiti sama tímabils 11,7°C. Ársúrkoman var 1.124 mm og fellur verulegur hluti hennar sem regn. Í janúar ríkja norðaustlægar áttir en á sumrin suðlægar. Logn er aðeins 3% á Keflavíkurflugvelli en 7% í Reykjavík og 23% á Egilsstöðum. Meðal- vindhraði yfir árið er 3,6 Beaufort-stig á Keflavíkur- flugvelli en til samanburðar 2,4 á Hallormsstað.29 Þó megnið af bæjarlandinu einkennist af hrauni er þar meira af gróðurmold en sýnist, milli hraunhóla og klappa. Það kom berlega í ljós þegar verið var að grafa fyrir tvöföldun Reykjanesbrautarinnar svo og í húsgrunnum nýbygginga í Vogum. En það skiptast á hólar og lautir og á hólunum eða hraunkollunum er jarðvegur víða mjög þunnur. Þannig háttar einmitt til á skógræktarsvæðinu við Háabjalla þegar fjær dregur klettabeltinu. Því hefur verið haldið fram að moldin á Suðurnesj- um geymi lítinn raka 8,29 en það stenst ekki, ef marka má tilraunir sem höfundur þessarar greinar gerði með nemendum sínum í Fjölbrautaskóla Suður- nesja á 9. áratugnum samkvæmt aðferðum GLOBE- verkefnisins. Rannsökuð var brúnjörð á óbyggðum svæðum í Keflavík. Í ljós kom að þessi Suðurnesja- mold geymir raka svo vel að umsjónarmenn GLOBE í Bandaríkjunum trúðu ekki niðurstöðunum og neit- uðu í fyrstu að skrá þær í gagnagrunn verkefnisins. Flest sýnin (tekin í okt. og nóv.) innihéldu vatn á bilinu 61–94%, þ.e. vatn sem hlutfall af massa ofn- þurrkaðs jarðvegs. Ef jarðvegurinn var mettaður af vatni (vökvaður) áður en sýni var tekið innihélt hann oftast yfir 100% vatn (af þurrvikt).12,36 Þar sem brúnjörð 23 getur geymt óhemju mikið vatn 23,27 er eðlilegt að ísnálar myndist í henni í frostum eftir vætutíð þegar hún er vatnssósa. Ísnálar með tilheyrandi frostlyftingu myndast við yfirborð moldarflaga en miklu síður undir gróðurþekju.19 Þær myndast aðeins þar sem jarðvegur er ber og er líklegt að hitaeinangrun svarðlagsins komi í veg fyrir myndun þeirra. Ísnálarnar valda frostlyftingu og leika grátt plöntur sem reyna að nema land í moldar- flögum. Sama á við um litlar trjáplöntur sem þar eru settar. Það þýðir einfaldlega ekki að gróðursetja í moldarflögin nema til komi mikið magn af lífrænum áburði sem dregur úr frostlyftingu. Búskaparhættir fyrr á öldum gengu mjög nærri gróðri og jarðvegi hér, einkum beit búfjár og eldi- viðartaka. Þegar allur skógur og kjarr var uppurið í nágrenninu var rifið upp lyng og mosi til að brenna og til að greiða með skatt til kóngsins manna á Bessastöðum.35 Með batnandi efnahag dró mjög úr eldiviðartöku og nú hefur jarðhitinn tekið við. Nokkuð fjölbreyttur gróður þrífst í skjólinu af Háabjalla. Má þar nefna blágresi, brönugrös, jarð- arber, hrútaber og síðast en ekki síst skógfjólu.16 Sitkagrenið er byrjað að sá sér í skóginum. Höfundur Þorvaldur Örn Árnason

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.