Skógræktarritið - 15.05.2011, Síða 71

Skógræktarritið - 15.05.2011, Síða 71
69SKÓGRÆKTARRITIÐ 2011 tjarnir árin 1948–1949. Faðir Guðbrandar var seglasaumari og fengu þeir seglaafganga frá honum til að klæða á grind og smíða sér báta. Seglin voru svo tjörguð og sigldu þeir á þessum heimasmíðuðu bátum á tjörnunum og geymdu svo í hraungjótum. Þetta voru mikil ævintýri fyrir stráka um fermingu.9 Hvernig tengist þessi skátasaga skógræktinni í Háabjalla? Jú, á þessum tíma var þar fleira ævin- týrafólk á ferð – komið til vits og ára. Það voru þeir sem hlustuðu ekki á úrtöluraddir og hófust handa við að rækta skóg undir Háabjallanum, en það þótti klikkun á þeim tíma. Skátarnir slógust stundum í hóp skógræktarfólksins og voru nýttir til að gróður- setja eins og einn þeirra komst að orði.9 Á 9. áratugnum komu Heiðarbúar með skála og settu inn á milli tveggja vestustu tjarnanna. Var hann töluvert áberandi kennileiti, en gekk síðan úr sér og hrundi 2010. Skógfellavegurinn, gamla þjóðleiðin milli Voga og Grindavíkur, liggur skammt austan við tjarnirnar. Hann hefur nú verið stikaður og er oft genginn. Þar sem þjóðleið þessi sker Reykjanesbraut var gerður undirgangur sem nýtist Vogabúum vel þeg- ar þeir fara á útivistarsvæði sitt við Háabjalla og Snorrastaða tjarnir. Sprengjur – leifar heræfinga Bandaríkjahers Í tvígang a.m.k. hafa fundist sprengjur við Háabjalla. Síðast árið 2003 fundu börn að leik virka sprengju. Líklega hefur hún fundist áður á gömlu æfingasvæði hersins þar skammt frá og verið borin að bjall- anum. Landhelgisgæslan sprengdi hana á staðnum og myndaðist lítill gígur í moldina. Þá var enn og aftur farið og leitað með tækjum en ekki fundust fleiri sprengjur á Háabjallasvæðinu, en margar nær Skógfellaveginum. Adrian J. King, sprengjusérfræðingur Landhelgis- gæslunnar, upplýsti 2003 að á árunum 1952–1959 hefðu átt sér stað miklar heræfingar á 15 ferkíló- metra svæði í Vogaheiði og þar hafi rignt hundr- uðum þúsunda sprengna af ýmsum stærðum og gerðum. Mesti þéttleikinn væri rétt austan við Snorrastaðatjarnir. Slík æfingarsvæði væru víðar á Suðurnesjum, svo sem við Stapafell, Sandgerði, Krýsuvík og Kleifarvatn, en 1985 hefði herinn hætt að nota virkar sprengjur í æfingum. Útilokað er að hreinsa svæði sem þetta þannig að það verði öruggt, en hægt er að hreinsa litla bletti með nokkru öryggi. Sprengjur þessar verða hættulegar í hundruð ef ekki þúsundir ára og jafnvel enn hættulegri er þær eldast. Lítil hætta er á að þær springi þó maður reki í þær fótinn, en öðru máli gegnir ef unnið er með skóflu og öðrum jarðverkfærum, svo sem að gróður- setningu eða stígagerð. Adrian taldi að ef til stæði að gróðursetja í tiltekinn blett ætti að láta Landhelgis- gæsluna vita svo þeir gætu fínkembt blettinn áður2. Bandaríkjaher gat ekki afhent almennilegt kort af svæðinu en Landhelgisgæslumenn fundu loks útlínur skotæfingasvæðisins á korti sem Land- mælingar gerðu 1951. Svo virðist sem aðallega hafi verið skotið frá einum stað nálægt Háabjalla rétt við Reykjanesbraut. Fullvíst má telja að einhverjar Útskriftarhópur Heilsuleikskólans Suðurvalla ásamt kenn­ urum sínum að lokinni gróðursetningu. Mynd: OJR 2009 Nemendur úr Stóru­Vogaskóla snæða nesti. Mynd: Oktavía J. Ragnarsdóttir (OJR) 2009
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.