Skógræktarritið - 15.05.2011, Blaðsíða 74

Skógræktarritið - 15.05.2011, Blaðsíða 74
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201172 af trjám nema á 15–20 m belti út frá hamrinum ... Sitkagrenið er eina trjátegundin sem hefur spjarað sig vel í Háa-bjalla, auk nokkurra trjáa af rauðgreni. Nokkur ljómandi falleg sitkagrenitré eru þarna núna, sum um 10–12 m há.“ii Sigurður gefur jafnframt út dánarvottorð fyrir trjá- tegundirnar þar sem hann getur til um hvað gæti hafa orðið plöntunum að fjörtjóni, svo sem furulús, vor- hretið 1983, sauðfjárbeit eftir að hætt var að hugsa um girðinguna (fé er einkar sólgið í lauftré og lerkið) og sinubruna þar sem mikið af trjám brunnu.29 Stopular heimildir eru tiltækar um gróðursetn- ingaraðferðir, áburðargjöf og umhirðu skógarins framanaf. Lengi vel var mjög erfitt að koma ökutæki að og kann það að hafa dregið úr að menn notuðu húsdýraáburð við gróðursetninguna. Guðbrandur Sörenson mundi eftir að einhverju sinni hafi verið sturtað loðnu inn í skóginn í Háabjalla á nokkrum stöðum upp úr 1970 og var ólíft þar það sumar að hans sögn.13 Frumherjar Félag Suðurnesjamanna átti Háabjallareitinn þar til honum var afsalað til Skógræktarfélags Suður- nesja þann 20. mars 1970,30 en félagið var stofnað 1950 að frumkvæði Félags Suðurnesjamanna.1 Í afsalinu er tekið fram að Skógræktarfélagið skuli endurbyggja girðingu utan um landið, sem gæti þýtt að hún hafi verið orðin léleg og fénaður gengið út og inn og átt þátt í því hve margar af plöntunum drápust. Árið 1985 er girðingin dæmd ónýt.29 Starf Skógræktarfélagsins var öflugt fyrst en svo dró úr því. Í skýrslu Skógræktar ríkisins frá 1986 segir um félagið: „Þarna var starfað af nokkrum krafti og áhuga fyrstu árin, en úr því lognaðist starfið útaf svo að í 20–25 ár hefir það legið niðri að mestu og skógræktarfélagið að heita má óvirkt nema í Grindavík.“iii Af einstökum frumkvöðlum ber fyrst að nefna Egil Hallgrímsson, kennara og kortagerðarmann, frá Austurkoti í Vogum (f. 1890). Hann bjó og starf- aði í Reykjavík og kom mörgu til leiðar. Hann hafði frumkvæði að skógræktinni við Háabjalla og einnig í Aragerði í Vogum. Hann var frumkvöðull að stofn- un Skógræktarfélags Suðurnesja 1950 og gaf 1000 kr. við stofnun þess og urðu þeir peningar síðan að Skógræktarsjóði Suðurnesja. Hann var kjörinn fyrsti heiðursfélagi Skógræktarfélagsins á aðalfundi þess 1955. Yngri bróðir Egils, Árni Klemens Hall- grímsson hreppstjóri í Vogum, kemur einnig mikið við sögu skógræktar á Suðurnesjum.1,3,6,21 Svo virðist sem landgræðsluskógaátak hafi þegar verið hafið á 6. áratugnum því í frétt frá aðalfundi félagsins 1958 segir m.a.: „Grasfræssáning hefur farið fram í girð- ingunum með góðum árangri og er unnið að því að græða þar upp öll flög, jafnhliða trjáræktinni.“iv Næstur er nefndur til sögunnar Siguringi E. Hjör- leifsson, kennari við Austurbæjarskóla og tón- skáld, kjörinn heiðursfélagi í Tónskáldafélagi Ís- lands 1963.17 Þeir Egill voru vinir og stóðu saman í frumkvöðlastarfi ásamt fleirum. Hann kom á Willis-jeppa úr Reykjavík með plöntur á toppnum til að gróðursetja upp úr 1960 að sögn Særúnar Jónsdóttur í Vogum. Siguringi var kunnugur Árna Klemens í Austurkoti sem aðstoðaði hann við að fylla bílinn af unglingum úr Vogum til að aðstoða hann við skógræktina.34 Þar á meðal voru 3 dætur Árna, þær Ása, Helga Sigríður og Halla.6,20 Magnús Ágústsson man eftir Siguringa að stinga út úr fjár- húsum í Halakoti á Vatnsleysuströnd, setja taðið í poka og upp á bílinn og flytja í Sólbrekkur, einn af reitum Skógræktarfélags Suðurnesja, þar sem hann vann mikið að gróðursetningu.20 Skógrækt og umhirða nú Skógræktar- og landgræðslufélagið Skógfell hefur starfað af krafti síðan það var stofnað 1998. Nafn félagsins er dregið af nafni Litla-Skógfells sem er í Ung manneskja við unga sjálfsána greniplöntu í sprungu á kletti. Jarðvegur afar lítill enda dó plantan 2 árum síðar. Mynd: Ragnheiður E. Jónsdóttir 2008 iii Sigurður Blöndal, 1987, bls. 5. iv Alþýðublaðið, 18.05.1958, bls. 12.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Skógræktarritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.