Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 80

Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 80
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201178 Höfundur bókar- innar er höfðinginn Helgi Hallgríms- son á Egilsstöðum, náttúrufræð ingur og fyrrum skógar- bóndi á Droplaug- arstöðum í Fljóts- dalshreppi. Hann er öllu skógrækt- arfólki og öðrum náttúruunnendum af góðu kunnur. Bókin er fyrsta ýtarlega ritið um sveppafræði sem kemur út á íslensku og skiptist í tvo megin hluta. Fyrst fjallar Helgi almennt um sveppi og sveppafræði og síðan lýsir hann um 700 tegundum sveppa í máli og myndum. Í bókinni eru fjölmargar ljósmyndir og teikningar sem eykur gildi hennar sem almennrar fræðibókar. Bókin hefur hlotið verðskuldaða opinbera viðurkenningu sem fræðirit, hún hlaut m.a. Íslensku bókmenntaverð- launin í flokki fræðirita árið 2010. Helgi gaf út fyrstu almennu íslensku handbókina um sveppi árið 1979 og bar hún nafnið Sveppakver- ið. Hún er löngu uppseld og ófáanleg. Þetta framtak Helga markaði ákveðið upphaf í nýtingu ætisveppa á Íslandi, en í kjölfarið má segja að nýting ætisveppa hafi breyst úr því að vera sárasjaldgæft fyrirbæri hér á landi yfir í að verða áhugamál fjölda manna og kvenna. Helgi segist sjálfur í formála Sveppabókar- innar hafa farið að huga að útgáfu nýrrar, breyttrar og stækkaðrar bókar um sveppafræði um 1985 og hafi síðan unnið að henni með hléum næstu 25 árin. Sveppir eru tegundaríkasti flokkur lífvera á Ís- landi. Alls eru þekktar sveppategundir Íslands um 2100 talsins, auk fléttna og skófna sem eru samlífi svepps og þörungs og telja um 700 tegundir hér- lendis. Fjallagrösin okkar eru því að stærstum hluta sveppir og ættu því með réttu að teljast til mat- sveppa. Íslendingar hafa því stundað sveppanytjar um aldir, án þess að gera sér grein fyrir því! Flestar íslenskar sveppategundir, eða ríflega 1500, teljast til smásveppa sem eru á mörkum þess að sjást með berum augum. Stórsveppir eru tegundir sem mynda vel sýnilegan vöxt á yfirborði. Algengastir þeirra eru hinir svokölluðu hattsveppir, en mynd af einum slíkum, kúalubba, prýðir einmitt kápu Sveppa- bókarinnar. Hann vex hér hvarvetna með birki og fjalldrapa. Bókin fjallar meðal annars um eðli og gerð sveppa, vistfræði þeirra, sveppasjúkdóma á mönnum, dýr- um, trjám og öðrum plöntum, mat- og eitursveppi, ræktun matsveppa og sögu svepparannsókna hér- lendis og erlendis. Það er sérstaklega áhugavert fyrir íslenska skógræktendur að Helgi fjallar einnig ýtar- lega um svepprætur trjáa, sem geta verið forsenda þess að trjátegundir fái þrifist á nýjum vaxtarstað. Lýsingar Helga á einstökum sveppategundum af- markast að mestu við sjúkdómsvaldandi smásveppi og síðan allflesta þekkta stórsveppi landsins. Allir ís- lenskir matsveppir teljast til stórsveppa, og fá flestir þeirra ítarlega umfjöllun svo og nokkrir vel þekktir erlendir matsveppir og eitursveppir sem ekki hafa enn fundist á Íslandi. Áhugi á nýtingu stórsveppa til matar hefur stóraukist á Íslandi síðan að Sveppa- kverið kom út árið 1979. Síðan þá hafa komið út tvær sveppabækur eftir aðra höfunda sem hafa lýst nokkrum völdum tegundum matsveppa. Margar matsveppategundir eiga sér hins vegar frændur og frænkur sem líkjast þeim en eru ekki ætar eða jafn- vel varasamar. Það var því mikill skortur á betra yfirliti yfir stórsveppi Íslands. Sveppabókin gefur áhugamönnum um sveppanytjar langþráð tækifæri á að hafa gott yfirlit yfir nær alla þekkta stórsveppi Íslands. Þetta dregur mikið úr hættu á að alvarleg mistök verði við tegundagreiningar og nýtingu ís- lenskra matsveppa. Þar til að Sveppabókin kom út voru áhugamenn neyddir til að nýta sér sambærilegar sveppabækur sem skrifaðar hafa verið um stórsveppi í nágranna- löndum okkar, t.d. Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi eða Bretlandseyjum, til að fá víðara yfirlit um tegundir sem líktust þekktum ætisveppum landsins. Engin þeirra bóka inniheldur þó allar ís- Sveppabókin Ritfregn Íslenskir sveppir og sveppafræði eftir Helga Hall- grímsson. Útgefandi: Skrudda, Reykjavík 2010, 632 bls. Höfundur Bjarni Diðrik Sigurðsson

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.