Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 94

Skógræktarritið - 15.05.2011, Page 94
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201192 Gráelri Viður gráelris er oftast einsleitur, mjúkur og jafnast á við linditré sem útskurðarviður. Vatnsæðar eru jafnt dreifðar um viðinn, árhringir eru lítt sýnilegir og oft í bylgjum. Viðurinn er auðveldur í allri vinnslu og auðvelt er að beygja elri. Styrkur viðarins er ívið meiri en í greni en harka svipuð. Mikil sútunarsýra er í elri, viðaráta er algeng og gráelri myndar bæði eldtungur og augnmynstur. Hnútar í kringum stórar greinar eru algengir. Viðurinn lyktar hvorki né gefur bragð og hentar vel sem reykingaviður, rýrnun hans er nokkur við þurrkun en minni en í birki. Ending utanhúss er lítil. Gráelri er það tré sem hvað mestan ræktunar- hagnað getur gefið. Þegar við 15 ára aldur má fara að nýta tréð til smíða. Sérstakt er að tréð er í sam- búð við geislasvepp af ættkvíslinni Frankia og bind- ur nítur úr lofti. Áburðarþörf er því engin og elri er þar með mjög hagkvæmt í ræktun. Gullregn Kjarni gullregns er græn-gulur í nýfelldu tré en dökknar fyrir áhrif súrefnis og verður dökkbrúnn með aldrinum. Kjarnviðurinn er mjög harður og end- ingargóður. Viðurinn er mjög litsterkur, en speglun í mergstrengjum er einkenni viðarins. Frekar erfitt er að þurrka heila boli. Þetta er þungur viður, sá þyngsti sem við getum ræktað og er hentugur í sam- límingar, svo sem með birki, og í smíðar á ýmsum smáum hlutum. Garðahlynur Garðahlynur myndar einsleitan ljósan og glans- andi við, árhringir eru ekki áberandi og hlynur er sterkur viður miðað við þéttleika. Sérlega auðvelt er að beygja hlyn og er hann að því leyti líkur aski. Eldtungur eru vel þekkar og augnviður finnst einnig. Reynir Reyniviður er harður, þungur og glansandi viður. Vatnsæðar liggja dreift og merggeislar eru smáir. Gráelri er með ljósan við, sem verður rauðleitur þegar súrefni kemst að honum. Hröðust er litabreytingin í ferskum viði. Eftir að greinar þessa trés voru sagaðar af liðu um 20 mínútur þar til litabreytingin var afstaðin. Fimmtán ára gráelri hefur þegar myndað beinan og vinnslu hæfan stofn, sem er þar að auki með nokkra hnúða. Undir þeim er skrautlegur viður. Skál úr gullregni. Kjarninn er mjög dökkur, harður og með talsverða fúavörn. Rysjan er hins vegar ljós og í ungum trjám með grænleitum blæ.

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.