Bókatíðindi - Nov 2025, Page 15

Bókatíðindi - Nov 2025, Page 15
IB Binna spæjari Draugahúsið Höf: Sally Rippen Binna og vinir hennar hafa stofnað leynifélag. Það er bara eitt vandamál – hvaða leynilegu ráðgátur eiga þau eiginlega að leysa? Binna spæjari er nýr bókaflokkur um Binnu fyrir lesendur sem eru lengra komnir. 90 bls. Rósakot KIL Binna B Bjarna Draumabrúðkaupið Höf: Sally Rippen Í þessari bók er Binnu boðið í brúðkaup. Hún er búin að finna fullkomið dress og bíður spennt eftir deginum. Hvað gerist þegar brúðkaupið er ekki eins og hún var búin að ímynda sér? 42 bls. Rósakot IB Ævintýri Freyju og Frikka Drottningin af Galapagos Höf: Felix Bergsson Myndh: Kári Gunnarsson Hér segir frá ævintýraferð systkinanna Freyju og Frikka til Galapagoseyja með pöbbum sínum. Þar dvelja þau um borð í bátnum Drottningunni af Galapagos ásamt ferðalöngum frá öllum heimshornum. Brátt fara undarlegir atburðir að gerast og ljóst er að eitthvað gruggugt á sér stað um borð, eitthvað sem tengist sérstöku dýralífi eyjanna. 160 bls. Drápa IB RAF HLB Birtingur og símabannið mikla Höf: Gunnar Helgason Myndir: Elías Rúni Foreldrar Birtings eru í uppeldisátaki og ætla að taka af honum símann í sumar. Svo segja þau bara glottandi að hann geti keypt sér síma sjálfur ef þetta er svona hræðilegt (sem það er)! Birtingur safnar dósum, selur dót og lýgur smá … og platar smá … en svo er hann nappaður! Af bekkjarsystrum sínum, Aldísi og Birtu … og þá fyrst fer allt í rugl! 184 bls. Forlagið - Mál og menning IB Bekkurinn minn Björgum móanum! Höf: Yrsa Þöll Gylfadóttir Myndh: Iðunn Arna Björgum móanum! Fjallar um Wiktoriu og besta leiksvæðið í bænum. Börnin frétta af því að það eigi að byggja risastóra blokk í miðju hverfinu. Það má ekki gerast! Þau taka höndum saman og mótmæla. 64 bls. Bókabeitan IB Brandarabíllinn Höf: Sváfnir Sigurðarson Lífið gengur sinn vanagang í Bjarkarey í Norðanhafi. Matti er í pössun hjá Hagbarði vitaverði og allt er með kyrrum kjörum þar til að uppfinningakonan Katarína Kristrós kemur í heimsókn á undarlegum bíl sem gengur ekki fyrir eldsneyti, heldur bröndurum. Brandarabíllinn er fyrsta bókin í sprenghlægilegum bókaflokki eftir Sváfni Sigurðarson. 152 bls. Salka IB Dagbók Kidda klaufa 19 Sull og bull Höf: Jeff Kinney Þýð: Helgi Jónsson Hér er komin 19. bókin í þessum vinsælasta bókaflokki heims. Stórfjölskyldan er öll saman í fríi. Þetta er uppskrift að stórslysi – en uppskriftir koma einmitt hér við sögu, því kjötbollurnar hennar ömmu eru orðnar frægar og uppskriftin er algjört leyndarmál. Það hlýtur að sjóða upp úr þessum kraumandi fjölskyldupotti. 224 bls. Sögur útgáfa IB Dísa fer í sveitina Höf: Oddbjörg Ragnarsdóttir Myndh: Harpa Stefanía Róbertsdóttir Á hverju vori fer Dísa í sveitina í sauðburð og finnst alltaf jafn gaman. Hún kynnist dýrum og fólki og leikur sér við dýrin. Dísa kynnist sveitalífinu og í þessari sögu er fylgst með henni í einni slíkri ferð. Sveitalífið getur verið alls konar, sérstaklega fyrir borgarbarnið. 31 bls. Gudda Creative Styðjum við lesskilning barna, ræðum textann hvort sem við lesum fyrir börn eða þau lesa sjálf. Stöldrum við og spáum fyrir um næstu skref: • hvar skyldi þetta nú enda? • eftir að þetta gerðist þá held ég að næst … • þau gætu endað í klípu núna vegna þess að … B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 15GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Barnabækur  SK ÁLDVERK 

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.