Bókatíðindi - Nov 2025, Page 19

Bókatíðindi - Nov 2025, Page 19
IB Loki: Leiðarvísir fyrir prakkara – hvernig afla skal óvina Höf: Louie Stowell Þýð: Solveig Sif Hreiðarsd. Myndh: Louie Stowell Fjórða bókin í ritröðinni um Loka. Honum gengur ekki vel að vinna í sjálfum sér og nú er svo komið að hann þarf að leysa eftirfarandi verkefni: 1. Endurheimta vinskap Georgínu. 2. Lifa af hólmgöngu gegn hefnigjörnum álfi sem beitir göldrum. 3. Bjarga heiminum frá illum öflum. www.kver.is 268 bls. Kver bókaútgáfa IB Lesið með Lubba Lubbi og lömbin & Lubbi eignast vin Höf: Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir Tvær fallegar og litríkar léttlestrarbækur um Lubba eftir höfunda bókarinnar Lubbi finnur málbein. Lubbi lendir í ævintýrum og á hverri síðu eru hljóðin og táknrænar hreyfingar þeirra sýnd. Þannig verður lesturinn skemmtilegur og gagnlegur en táknrænu hreyfingarnar mynda brú á milli málhljóða og bókstafa. 22 bls. Forlagið - Mál og menning IB Litaskrímslið Læknirinn: sérfræðingur í tilfinningum Höf: Anna Llenas Myndh: Anna Llenas Þýð: Elín G. Ragnarsdóttir Litaskrímslið er nú læknir og hjálpar öðrum að lækna tilfinningar sínar, sérstaklega þær sem eru orðnar svo stórar að þær valda óþægindum. Litaskrímslið hjálpar vinkonu sinni Nínu að átta sig á hvernig henni líður og að læra að segja nei! Litaskrímslið hefur slegið í gegn um allan heim! 48 bls. Drápa SVK Úr heimi Ísadóru Nótt Mírabella brýtur reglurnar Höf: Harriet Muncaster Þýð: Ingunn Snædal Þegar Mírabella byrjar í nornaskólanum lofar hún að gera ekkert af sér ……En svo gengur allt á afturfótunum í bruggtímanum og flugæfingin endar með ósköpum. Áður en varði er Mírabella búin að brjóta allar reglur sem hægt er að hugsa sér. 128 bls. Drápa IB Lestu sögu á 10 mínútum! Ofurhetjan Höf: Giuditta Campello Skemmtileg myndskreytt saga miðuð við yngstu lesendurna. Textinn er 400-500 orð og skilningsverkefni eru í lok sögunnar. 33 bls. Rósakot IB Spiderman Kóngulóarmaðurinn grímulaus! Peter Parker - hin sanna dagbók Höf: Marvel / Disney Hvernig er að fara frá því að vera aðallúðinn í skólanum í að vera heimsfræg ofurhetja? Lestu um það í háleynilegri dagbók Peters Parkers sem er stútfull af hugsunum hans, kroti, hetjumyndum og frásögnum af stórfenglegustu bardögunum. Hann sprangar, spaugar og - vinur þinn Kóngulóarmaðurinn er mættur til leiks! Edda útgáfa IB Leyndarmál Lindu 11 Sögur af ekki-svo vinalegum óvini Höf: Rachel Renée Russell Þýð: Helgi Jónsson Linda kemst að því að hún þarf að fara í Norðurskólann í heila viku sem skiptinemi. Sem er hræðilegt því þar ræður óvinur hennar númer eitt, Hildar Hermundar, ríkjum! Bækurnar um Lindu hafa slegið í gegn og setið á metsölulistum víða um heim um árabil. Fjörlegar teikningarnar og léttleikandi textinn gera lesmálið aðgengilegt og skemmtilegt. 256 bls. Sögur útgáfa SVK Nadía og netið Leyndarmál Nadíu Höf: Caroline Engvall Þýð: Ingunn Snædal Myndir: Katarina Vintrafors Nadía, níu ára, fær sinn fyrsta síma í afmælisgjöf. Á netinu kynnist hún Söru, vinkonunni sem hún þráði – skilningsríkri og góðri. En fljótlega þróast atburðarás sem Nadía ræður ekki við. Hjálpleg og aðgengileg bók sem hvetur börn á aldrinum 6–14 ára og foreldra þeirra til samtals um lífið á netinu. 54 bls. Tengd IB Voðagerði Lilja Höf: Hilmar Örn Óskarsson Myndh: Blær Guðmundsdóttir Velkomin í Voðagerði – hér er allt að óttast! Einn morguninn mætir Lilja í skólann með límband fyrir munninum. Meðal nemenda og kennara kvikna ótal hugmyndir, allar frekar óhugnanlegar. Sjálf er Lilja þögul sem gröfin en augljóslega blundar eitthvað hræðilegt í henni og vei sé öllum í Voðagerði ef það sleppur út. Ekki fyrir viðkvæmar sálir! 136 bls. Bókabeitan IB Ljóni gerir usla hjá púdda púdd Höf: Guðný Anna Annasdóttir Myndh: Páll Jóhann Sigurjónsson Ljóni er fimm ára strákur. Hann er í heimsókn hjá afa sínum við Elliðavatn. Þegar afi skreppur frá er Ljóna treyst fyrir að líta eftir hænsnunum. Hvað gerir Ljóni þá? 31 bls. Gudda Creative B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 19GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Barnabækur  SK ÁLDVERK 

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.