Bókatíðindi - nóv. 2025, Síða 22

Bókatíðindi - nóv. 2025, Síða 22
IB Versta vika sögunnar: Miðvikudagur Höf: Matt Cosgrove og Eva Morales Þýð: Kristján B. Jónasson Hefur þú einhvern tíma átt slæma viku? Það hefur Jón Jónsson átt, og þetta er sú vika! Kötturinn hans er enn óskiljanlega týndur. Hann er óviljandi orðinn heimsfrægur á netinu. Akkúrat núna er hann umkringdur af hákörlum, strandaglópur í hjartastoppandi, gæsahúðar-hrollvekjandi, munn-opnandi og grafalvarlegri S.O.S. stöðu með erkióvini sínum. 192 bls. Drápa IB Versta vika sögunnar: Þriðjudagur Höf: Eva Morales og Matt Cosgrove Myndir: Matt Cosgrove Þýð: Kristján B. Jónasson Hefur þú einhvern tíma átt slæma? Það hefur Jón Jónsson átt, og þetta er sú vika! Kötturinn hans er enn týndur, var líklega rænt af geimverum. Pabbi hans er vonlausari en nokkurn tíma áður. Hann er óvænt orðin stjarna á netinu – á versta mögulega hátt. 192 bls. Drápa IB Vélhundurinn Depill Höf: Tómas Zoëga Myndir: Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir Fjórða sagan í verðlaunaflokknum um Pétur og Stefaníu, ríkulega myndskreytt og með sérvöldu auðlæsilegu letri. Nornin hefur misst hann Lubba sinn og er alveg óhuggandi. Og eitthvað óhugnanlegt er á seyði í garðinum sem virðist tengjast gröf Lubba. Hver er að róta í moldinni? Það skyldi þó ekki vera að ljúfi hundurinn Lubbi sé genginn aftur? 153 bls. Forlagið - Mál og menning KIL Vondir gaurar Þáttur 7 Höf: Aaron Blabey Þýð: Huginn Þór Grétarsson Hr. Úlfur og góðu gaurarnir ferðast óvart aftur til júratímabilsins! Verða þeir étnir af risaeðlum? Örugglega. Hvernig geta þeir snúið aftur til síns tíma og bjargað Jörðinni frá geimveruárás? Þetta er allt svo rangt. Þeir eru allir svo vondir. Tími fyrir forsögulega tíma - tími fyrir Vonda gaura, þátt 7. 160 bls. Óðinsauga útgáfa IB Ömmusögur Höf: Jóhannes úr Kötlum Myndir: Tryggvi Magnússon Rúm níutíu ár eru síðan Ömmusögur Jóhannesar úr Kötlum komu fyrst út með teikningum eftir Tryggva Magnússon. Bókin hefur verið ófáanleg um langa hríð en kemur nú út á ný í vandaðri umgjörð. Líkt og hin sívinsæla bók Jólin koma geymir hún sígildan kveðskap fyrir unga sem aldna og miðlar hinum sanna jólaanda. 32 bls. Forlagið - Mál og menning IB Stærsti og furðulegasti ævintýrabíll heimsins Hín ótrúlega saga Höf: Sven Maria Schröder Þýð: Ásmundur Helgason og Elín G. Ragnarsdóttir Brúnó er ægilega stoltur af litla rauða bílnum sínum. En í umferðinni eru svo mikil læti; fólk að flauta og kalla – og svo, „búmm“! Það verður árekstur. Árekstur! Enginn slasast, en bíllinn er ónýtur. Og hvað nú? Brúnó fær snilldarhugmynd. Hann og vinir hans smíða nýjan og brjálaðan bíl úr beygluðum bílflökum. Þeir eru óstöðvandi. 32 bls. Drápa IB Dagur með Lalla Töfrandi tónleikar Höf: Lárus Blöndal Guðjónsson Skemmtileg saga um Lalla sem ætlar að verða töframaður þegar hann verður stór. Dagur með Lalla: Töfrandi tónleikar er bók sem ætluð er byrjendum í lestri. Bókin er með sérstöku lesblinduletri, góðu línubili og fallegum myndskreytingum. 43 bls. Rósakot IB Undrarútan Höf: Jakob Martin Strid Þýð: Jón St. Kristjánsson Stærsta bók ársins. Stór-stór-stór-kostleg bók eftir höfund Risastóru perunnar sem sló í gegn hjá íslenskum lesendum. Myndheimur sem má gleyma sér í klukkustundum saman. Magnað bókmenntaverk fyrir börn á öllum aldri. Bókin hlaut Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024. 212 bls. Forlagið - Mál og menning SVK Lestu sögu á 10 mínútum! Vampíruveisla Höf: Febe Sillani Skemmtileg myndskreytt saga miðuð við yngstu lesendurna. Textinn er 400-500 orð og skilningsverkefni eru í lok sögunnar. 33 bls. Rósakot IB Veiðivinir Höf: Gunnar Bender Myndir: Guðni Björnsson Tveir ungir strákar hafa mikinn áhuga á stangveiði og eyða öllum stundum við árbakkann, og lenda í ævintýrum. Skemmtileg og fjörug bók með líflegum litmyndum. 40 bls. Bókaútgáfan Tindur B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort22 Barnabækur  SK ÁLDVERK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.