Bókatíðindi - nov. 2025, Qupperneq 28
IB
Torf, grjót og burnirót
Höf: Sigrún Eldjárn
Hvernig á að byggja torfbæ? Sko, alvöru torfbæ?
Torf, grjót og burnirót leiðir lesendur um töfra
torfsins og útskýrir hvernig torfbær er reistur,
hvernig á að hlaða grjóti, stinga torf og finna
burnirót úti í haga til að koma fyrir í vegghleðslunni,
bænum til heilla. Fjörug og fróðleg saga.
56 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Traktorar og hjólavélar
Höf: Örn Sigurðsson
Traktorar og hjólavélar eru ómissandi í öllum
stórframkvæmdum, bæði í sveitum og bæjum.
Traktorinn er besti vinur bóndans og hjólaskóflan er
þarfur þjónn á byggingarsvæðum. Malbikunarvélar
koma að góðum notum þegar malbik er lagt og
dráttarbílar bjarga deginum! Kíktu í bókina og
kynntu þér þessi stóru og spennandi tæki!
34 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Ævintýri VÆB
Lita- og þrautabók
Höf: Addi nabblakusk
Taktu þátt í VÆB-ævintýrinu með því að leysa
þrautir og fylla VÆB-heiminn af litum og
gleði! Lita- og þrautabók full af skemmtilegum
verkefnum fyrir alla VÆB-aðdáendur.
Sögur útgáfa
IB
Vísindalæsi 6
Miklihvellur
Höf: Sævar Helgi Bragason
Myndir: Elías Rúni
Mögnuð léttlestrarbók úr hinum vinsæla
Vísindalæsisflokki. Hér ferðast Stjörnu-Sævar um
tíma og rúm, heimsækir misfurðulega fræðimenn
og reynir með aðstoð töfratækja vísindanna
(og af meðfæddri forvitni) að afhjúpa dýpstu
leyndardóma alheimsins. Bókin er prýdd fjölmörgum
ótrúlega flottum litmyndum Elíasar Rúna.
84 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Njála hin skamma
Höf: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Myndh: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Þessi myndabók byggist á einni ástsælustu
Íslendingasögunni, Brennu-Njáls sögu, sem
rituð var seint á þrettándu öld en lýsir atburðum
sem gerðust þrjú hundruð árum fyrr. Njáls saga
er æsispennandi örlagasaga sem hverfist m.a.
um ást, öfund, vinskap, svik, forlagatrú, hefnd,
hetjudáðir, sæmd, lagaklæki og sættir.
Einnig fáanleg á ensku.
48 bls.
Bókabeitan
IB
Risaeðlur
Lengsta bók veraldar
Höf: Jurrit de Bode
Þýð: Ingunn Snædal
Stútfull bók af fróðleik um hættulegustu, stærstu og
hraðskreiðustu risaeðlur sem lifað hafa á jörðinni!
Og svo er þetta ein lengsta bók veraldar! Þessi
tveggja metra langa tómstundabók hefur að geyma
hrikalegar risaeðlur. Glæsilega myndskreytt!
Veröld
KIL
Spurningabók
fyrir snjalla krakka
Höf: Huginn Þór Grétarsson
Krakkar og fullorðnir spreyta sig á skemmtilegum
spurningum sem skipt er upp í efnisflokka. Í bókinni
eru meira en 500 spurningar sem falla undir fjölbreytta
efnisflokka. Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi og á sínu áhugasviði. Þau svör sem við vitum ekki
lærum við, með því að fletta þeim upp í bókinni.
87 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Sögur úr norrænni goðafræði
Höf: Alex Frith og Louie Stowell
Þýð: Bjarki Karlsson
Sögur úr norrænni goðafræði segir hetjusögur
af fræknum köppum og goðum sem fylgt hafa
íslensku þjóðinni í meira en þúsund ár.
Í þessari eigulegu bók má lesa bráðskemmtilegar
endursagnir á nokkrum af helstu goðsögum
norrænna manna eins og við þekkjum þær
úr eddukvæðum og Snorra-Eddu.
280 bls.
Rósakot
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort28
Barnabækur FR ÆÐI OG BÆKUR ALMENNS EFNIS
Styðjum við lesskilning barna,
ræðum textann hvort sem við lesum
fyrir börn eða þau lesa sjálf.
Reynum að sjá fyrir okkur:
• ég held að þetta sé hættulegt
dýr vegna þess að …
• þetta er örugglega stærri borg
en við höfum komið í
• kannski sjórinn sé úfinn eins og
þegar við vorum í fjörunni
manstu?