Bókatíðindi - nov. 2025, Síða 32

Bókatíðindi - nov. 2025, Síða 32
IB Franski spítalinn Höf: Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson Febrúar 1989. Maður finnst látinn í Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði, draugalegu timburhúsi í niðurníðslu. Sunna, blaðamaður á Morgunblaðinu, fer austur til að grennslast fyrir um málið en bæjarbúar vilja lítið við hana tala og brátt fer hún að óttast um öryggi sitt og sinna nánustu. 316 bls. Veröld KIL Frelsi Höf: Sigga Dögg Frelsi er önnur bókin í þríleiknum um Marínu, fertuga konu í andlegu sjálfsuppgötvunarferðalagi. Þér er boðið með Marínu í ferðalag á húsbílnum þar sem hún heldur vestur og speglar sjálfa sig í óbeislaðri náttúru fjalla og sjávar. Sagan er sjálfsævisöguleg og byggir á dagbókum höfundar. 372 bls. Kúrbítur IB Frumbyrjur Höf: Dagur Hjartarson Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað. 160 bls. Benedikt bókaútgáfa RAF HLB Blóðbönd Galdra-Imba Höf: Sandra B. Clausen Líf Imbu er þyrnum stráð og ung er hún gefin ekklinum séra Árna. Örlögin vinna gegn henni en Imba finnur ástina. Þrátt fyrir erfiðleika er hún staðráðin í að finna hamingju í lífinu. Blóðbönd er ný sería úr smiðju Söndru Clausen um Galdra-Imbu sem var uppi á 17. öld. Hér er á ferðinni söguleg skáldsaga um ástir og örlög á erfiðum tímum. 05:20 klst. Storytel Original IB Farðí rassgat Aristóteles Höf: Benóný Ægisson Guðgeir Guðgeirsson er andhetja og ólíkindatól sem allt veit, einmitt sú týpa sem fer óstjórnlega í taugarnar á fólki. Hann flyst til borgarinnar til að meika það sem rímnaskáld einhverjum hundrað árum eftir að rímur fóru úr tísku, auk þess sem rímur hans fjalla um efni sem ekki er líklegt til vinsælda eins og raunir bresku konungsfjölskyldunnar. 222 bls. Skrudda IB Fáeinar sögur smáar Höf: Pjetur Hafstein Lárusson Annað smásagnasafn höfundar, en hann hefur að mestu lagt stund á ljóðagerð. Fyrra smásagnasafnið, Nóttin og alveran, kom út árið 2004. Í þessu nýja safni eru sextán smásögur og kennir þar margra grasa. Sumar sagnanna eiga sér nokkra stoð í því tvíræða fyrirbæri sem kallast veruleiki, aðrar eru eingöngu kynjaðar úr hugarheimi höfundar. 100 bls. Skrudda IB Feluleikir „Það er svo mikil einlægni á fjöllum“ Höf: Lilja Magnúsdóttir Arna er að skrifa kvikmyndahandrit fyrir elskhugann. Sögur hafa ávallt verið hennar akkeri en í kjölfar árásar á unga konu og feluleikja fólks sem stendur henni nærri, sogast hún og fjölskyldan öll, inn í atburðarás sem hún hefur enga stjórn á og veit ekki hverjum má treysta. Litlu munar að feluleikur verði sannleikanum yfirsterkari. Lilja Magnúsdóttir KIL Fimm ára brandarinn Höf: Helgi Jónsson Þriðja bókin, óbeint framhald af Bónorðunum tíu og Innsta kroppi í búri. Hér halda ófarir aðalpersónanna áfram. „Einhver allra fyndnasta og skemmtilegasta bók sem ég hef lesið.“ Laddi. 260 bls. Bókaútgáfan Tindur B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort32 Skáldverk  ÍSLENSK Slökun. Lestur veitir hvíld frá raunveruleikanum, dregur úr streitu og hefur róandi áhrif.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.