Bókatíðindi - nóv. 2025, Page 35
IB
Kómeta
Höf: Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson
Leiftrandi og óvenjuleg frásögn um kraftaverk
lífsins, stríðið gegn gleymskunni, leitina að ljósi
í heimi þar sem dauði, illska og fáfræði ráða oft
ríkjum, og hvernig sálirnar á jörðinni takast á
við sviptingar og breytta heimsmynd.
246 bls.
Dimma
KIL
Kúnstpása
Höf: Sæunn Gísladóttir
Heimsborgarinn Sóley er nýútskrifaður
hljómsveitarstjóri á framabraut í Leipzig sem
ætlaði alls ekki að flytja strax aftur heim til
Íslands. En þegar heimsfaraldur geisar og öllum
tónleikahúsum Evrópu er skellt í lás samþykkir
hún að koma heim og reka bókabúð afa síns
sumarlangt í heillandi smábæ á hjara veraldar.
176 bls.
Salka
IB
Kvöldsónatan
Höf: Ólafur Jóhann Ólafsson
Ungur drengur fylgist með föður sínum hjálpa
erlendum hjónum að flytja flygil inn í húsið beint
á móti heimili hans í Suðurgötu árið 1949. Sá
atburður á eftir að hafa mikil áhrif á framtíð hans.
Frábærlega fléttuð og áhrifamikil skáldsaga um
hæfileika og fórnfýsi, blekkingu og afhjúpun,
sekt, heiðarleika – og óbærilegan söknuð.
314 bls.
Veröld
IB RAF
Lausaletur
Höf: Þórdís Helgadóttir
Dularfullur faraldur herjar á heimsbyggðina og á
prentsafninu hefur ekki sést gestur vikum saman.
Björn og Írena drekka kaffi, endurraða í safnbúðinni
og dytta að vélunum. Innra með þeim bærast langanir
og eftirsjá. Þau vita ekki að einmitt þennan dag
stendur borgin á heljarþröm, né að innan stundar
muni óvæntur gestur birtast í anddyrinu.
311 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Láka rímur
Höf: Bjarki Karlsson
Þorlákur Snjákason er flestum kunnur úr barnabókinni
um hann Láka. Í Láka rímum birtist hann lesendum
í nokkuð öðru ljósi en hér er að ræða sannkallað
stórvirki frá rímnasmiðnum Bjarka Karlssyni sem
hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
árið 2013 fyrir metsöluljóðabókina Árleysi alda.
238 bls.
Almenna bókafélagið
KIL
Jónatan jeminn
Höf: Lárus Jón Guðmundsson
Í hnédjúpri moldarholu í gömlum kirkjugarði standa
tveir grafarar og spjalla um Jónatan jeminn, ævi hans
og ástir allt til þess er hann braut sextugan hálsinn á
bjórkassa. Annar grefur meðan hinn segir svakasögur
af fólkinu sem þekkti Jónatan sáluga. Var honum
sálgað eða dó hann af sleipum slysförum?
238 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK RAF
Jötunsteinn
Höf: Andri Snær Magnason
Þrjátíu ár eru síðan Andri Snær steig fram á ritvöllinn
og skipaði sér í hóp eftirtektarverðustu höfunda
landsins. Í þessari kröftugu nóvellu er Jötunsteini
kastað inn í heita umræðu um fegurð í borg sem er
smám saman að hjúpast svartri klæðningu og gráu
þverliggjandi bárujárni. Skörp og ögrandi saga.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Karitas - án titils
Höf: Kristín Marja Baldursdóttir
Sígilt snilldarverk Kristínar Marju. Dramatísk og
áhrifamikil örlagasaga ungrar stúlku í upphafi
20. aldar, saga um drauma og þrár, óvænta
hamingju, óbærilega sorg og miklar ástríður.
Um leið er brugðið upp mynd af lífi og hlutskipti
kvenna fyrr og síðar af einstöku innsæi.
447 bls.
Bjartur
KIL
Klúbburinn
Höf: Sandra B. Clausen
Ljúflestur með kraumandi ástríðu. Dagarnir líða
stefnulaust áfram. Söngkonan Adele er í aðalhlutverki
á heimilinu með boðskap sinn um sorg og horfnar
ástir. Hvers vegna ekki að lýsa yfir verkfalli á heimilinu?
Það verður nú varla heimsendir þótt hún hristi
ærlega upp í þessu öllu saman? Hvernig væri að
byrja upp á nýtt og flytja norður með börnin?
Sögur útgáfa
KIL
Klökkna klakatár – kilja
Höf: Ragnhildur Bragadóttir
Eftir andlát þjóðfrægs rithöfundar kafar ekkja hans
djúpt í endurminningar sínar um stormasamar
samvistir þeirra. Hún reynir að muna allt, fer úr
einni minningu í aðra, þræðir þær upp á spotta sem
svo slitnar þegar síst varir. Áhrifamikil skáldsaga,
rituð af óvanalegum stílþrótti og myndauðgi.
510 bls.
Ugla
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 35GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Skáldverk ÍSLENSK