Bókatíðindi - nov. 2025, Side 38
SVK
Smásögur I
1988-1993
Höf: Gyrðir Elíasson
Þrjú fyrstu smásagnasöfn höfundarins samankomin,
49 sögur alls og sumar þeirra löngu orðnar klassík í
íslenskum bókmenntum. Bréfbátarigningin (1988),
Heykvísl og gúmmískór (1991) og Tregahornið (1993).
Hluti af nýrri og vandaðri heildarútgáfu verka skáldsins
sem allir bókaunnendur þurfa að eignast.
267 bls.
Dimma
SVK
Sorgarmarsinn
Höf: Gyrðir Elíasson
Hér segir af manni sem öðrum þræði fæst við
textagerð en hallar sér þó aðallega að tónlistinni
og hefur fundið sér athvarf í litlu þorpi á
Austfjörðum. Táknræn og sérstæð frásögn af
sköpun, orðleysi og einskonar pattstöðu í flóknu
samspili lífs og listar. Þessi nýja útgáfa er hluti
af heildarsafni verka Gyrðis Elíassonar.
164 bls.
Dimma
SVK
Suðurglugginn
Höf: Gyrðir Elíasson
Hér tekur Gyrðir upp þráðinn þar sem frá var horfið í
Sandárbókinni og spinnur nýja frásögn um hlutskipti
listamanns, í þetta sinn er það rithöfundur sem dvelur
í sumarhúsi í grennd við lítið þorp og glímir við að
skrifa skáldsögu, verk sem neitar stöðugt að taka á sig
þá mynd sem höfundurinn leitast við að skapa.
159 bls.
Dimma
IB
Hulda áfallasagan
Höf: Karlynja Hulda Halldór Guðbjargar
Ég er úti á Granda í bílnum. Það gerðist eitthvað innra
með mér. Ég horfi út um gluggann á bílstjórahurðinni.
Þá sé ég mig sex ára litla stúlku í fyrsta skipti. Ég
finn að ég hafði yfirgefið hana árið 1963 á Laugarási,
sumardvalarstað fyrir börn á vegum Rauða kross
Íslands þar sem ég varð fyrir ofbeldi.
217 bls.
Karlynja Hulda Halldór Guðbjargar
IB
Snorkla
Höf: Karlynja Hulda Halldór Guðbjargar
Um Snorklu: Einu sinni var kona. Hún las
mikið. Byrjaði 6 ára að lesa, var mjög þjálfuð í
hraðlestri. Hún lagði allt í umhverfislestur.
Karlynja Hulda Halldór Guðbjargar
KIL
Sálnasafnarinn
Höf: Þór Tulinius
Hinn ungi séra Ebeneser er fljótur að vinna
hug og hjörtu samstarfsfólks og safnaðar í
kirkjunni þar sem hann er afleysingaprestur. Með
nærveru sinni einni saman leysir hann erfiðar
deilur milli manna, frelsar fólk frá sálarangist
og stöðvar ofbeldismenn í vígaham.
278 bls.
Bókstafur
IB
Síðustu dagar skeljaskrímslisins
Höf: Steinunn G. Helgadóttir
Síðustu dagar skeljaskrímslisins gerist í
ótilgreindri náinni framtíð í hnignandi smábæ á
Reykjanesi eftir að Golfstraumurinn hefur leitað
annað með tilheyrandi veðuráhrifum.
214 bls.
Króníka
IB
Sjáandi
Höf: Ester Hilmarsdóttir
Þegar dularfull spákona úr austri birtist í friðsælum
dal í íslenskri sveit fara ævintýralegir hlutir að
gerast og allt sem áður var fer úr skorðum. Saman
við komu spákonunnar fléttast barátta kotbænda
við auðvaldið úr nærliggjandi kaupstað, hrifnæmni
fjósastráks, forboðnar ástir heimasætu og förukona
sem enginn veit hvort er að koma eða fara.
288 bls.
Salka
IB RAF
Sjá dagar koma
Höf: Einar Kárason
Í lok 19. aldar hvílir drungi yfir þjóðlífinu en einstaka
menn hugsa stórt, þrá framfarir. Allslaus piltur úr
Dýrafirði er einn þeirra; óvænt fær hann pláss á
amerísku skipi og heldur af stað yfir höf og lönd,
óvissuför sem leiðir hann loks á vit athafnaskáldsins
Einars Ben. Fjörug saga um bjartsýni, stórhug
og stolt frá afburðasnjöllum sagnamanni.
196 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Sleggjudómur
Höf: Ragnheiður Jónsdóttir
Morguninn eftir brúðkaupsveislu finnst Erna
liggjandi í blóði sínu og skammt frá henni
morðvopnið, blóði drifin sleggja. Ótal spurningar
vakna hjá hennar nánustu. Hvað gerðist, hver
vildi henni svo illt og hvers vegna?
Sleggjudómur er þriðja bók Ragnheiðar en
hún hlaut glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn
fyrir frumraun sína, Blóðmjólk.
256 bls.
Bókabeitan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort38
Skáldverk ÍSLENSK