Bókatíðindi - Nov 2025, Side 43
IB
Fjórar konur
Höf: Honoré de Balzac
Þýð: Sigurjón Björnsson
Balzac hefur stundum verið kallaður skáld
ástarinnar. Og satt er það að konur gegna miklu
hlutverki í hinu mikla ritverki hans La Comédie
humaine. Oft gegna þær aðalhlutverki – svo er til
að mynda í þeim fjórum sögum sem hér birtast
á einni bók. Ástarmál þeirra allra eru vissulega
í forgunni en með afar ólíkum hætti.
262 bls.
Skrudda
KIL
Frontur
Höf: Johan Hurtig Wagrell og Johanna Hurtig
Wagrell
Þýð: Friðrika Benónýsdóttir
Taugatrekkjandi, nýstárleg og marglaga spennusaga
í nýrri spennubókaröð Hurtig Wagrell. Hjónin
Johan og Johanna Hurtig Wagrell tefla hér
fram sinni fyrstu spennusögu, sem hefur hlotið
frábærar viðtökur í Svíþjóð og var m.a. tilnefnd
til hinna virtu Crime-Time-verðlauna 2024.
351 bls.
Sögur útgáfa
KIL
Gleymda nistið
Höf: Kathryn Hughes
Þýð: Ingunn Snædal
Falleg, spennandi og hjartnæm saga um hvernig von
getur kviknað í rústum harmleiks og um endurnýjandi
kraft ástarinnar. Frá metsöluhöfundi Bréfsins,
Leyndarmálsins, Minningaskrínsins og Lykilsins .
382 bls.
Drápa
IB
Gráglettni örlaganna
Höf: Simona Ahrnstedt
Þýð: Elín Guðmundsdóttir
Árið er 1884. Nútíminn er að renna í hlað með
ferskum straumum og kvennabaráttan að vakna.
Ung yfirstéttarkona, Alexandra Rosenkvist,
þráir að mega lifa lífinu eins og hún vill sjálf en
íhaldssöm fjölskylda hennar þykist vita hvað
henni sé fyrir bestu. Hrífandi söguleg skáldsaga
um ástir og örlög á umbrotatímum.
589 bls.
Ugla
KIL
Fjällbacka-serían
Grátkonan
Höf: Camilla Läckberg
Þýð: Sigurður Þór Salvarsson
Með tólftu bókinni í Fjällbacka-syrpunni styrkir
Camilla Läckberg enn frekar stöðu sína sem einn
fremsti glæpasagnahöfundur samtímans.
Þrjátíu ár eru liðin síðan Soffía Rudberg
hvarf sporlaust. Skyndilega gerir lögreglan
óvænta uppgötvun og rannsóknin sem
fylgir í kjölfarið snýr tilveru allra þeirra sem
höfðu reynt að gleyma á hvolf.
544 bls.
Sögur útgáfa
KIL
Ég heyrði ugluna kalla á mig
Höf: Margaret Craven
Þýð: Gunnsteinn Gunnarsson
Í Kingcome-byggð við norðvesturströnd Kanada
hefur fólk búið öldum saman í sátt og samlyndi
við náttúruna. En nútíminn hefur hafið innreið
sína með tilheyrandi vandamálum og aldagamalt
veiðimannasamfélagið á undir högg að sækja.
194 bls.
Ugla
KIL RAF
Ég tæki með mér eldinn
Höf: Leïla Slimani
Þýð: Friðrik Rafnsson
Leïla Slimani lýkur þríleik sínum á glæsilegan hátt.
Mía og Ines, þriðja kynslóð Belhaj-fjölskyldunnar,
vilja haga lífi sínu eftir eigin höfði. Faðir þeirra
vinnur hörðum höndum að uppbyggingu innviða
í Marokkó en þær fara til Frakklands til að stunda
nám. Þar þurfa þær að finna sér stað, tileinka sér
nýjar reglur og horfast í augu við fordóma.
384 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK
Fado Fantastico
Höf: Urs Richle
Þýð: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Blús er hægt að hlusta á, tangó er hægt að
dansa, en fado verður að upplifa.
Á meðan Francisco Fantastico sefur úr sér
áfengisvímu í bifreið skammt frá heimili sínu í Genf
er hann skyndilega numinn á brott. Þar eru þó engir
þrjótar að verki heldur António sonur hans sem
ætlar að fara með hann alla leið til Lissabon.
192 bls.
Dimma
KIL RAF HLB
Ferðabíó herra Saitos
Höf: Annette Bjergfeldt
Þýð: Jón St. Kristjánsson
Heillandi og óvenjuleg saga sem segir frá Litu sem
er barnung þegar móðir hennar flýr með hana frá
Argentínu. Mæðgurnar enda á afskekktri kanadískri
eyju en smám saman kynnast þær fámennu en litríku
samfélaginu þar og Lita eignast vinkonu í fyrsta
skipti. En þegar herra Saito mætir með ferðabíóið
sitt opnast nýr ævintýraheimur fyrir Litu.
525 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Fiðrildaherbergið
Höf: Lucinda Riley
Þýð: Valgerður Bjarnadóttir
Heillandi saga um átakanleg leyndarmál eftir
metsöluhöfund bókaflokksins um systurnar sjö. Pósa
trúlofast Jonny en verður á svipuðum tíma ástfangin
af Freddie, sem yfirgefur hana óvænt. Þau Jonny
flytja í ættaróðalið og þar í skugga harmleiks elur hún
upp syni sína. Um sjötugt rekst Pósa aftur á Freddie
og veit að hún þarf að taka erfiða ákvörðun.
577 bls.
Benedikt bókaútgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 43GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Skáldverk ÞÝDD