Bókatíðindi - nov 2025, Qupperneq 53
SVK
Hvalbak
Höf: Maó Alheimsdóttir
Hvalbak er önnur ljóðabók Maó Alheimsdóttur.
Skáldsaga hennar Veðurfregnir og jarðarfarir vakti
mikla athygli þegar hún kom út árið 2024 en hún
er fyrsta frumsamda sagan sem kemur út á íslensku
eftir höfund sem lærði málið á fullorðinsaldri.
Einstök ljóðabók þar sem greina má nýtt og ferskt
sjónarhorn á íslenska náttúru og tungu.
96 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Hvernig er söknuður á litinn?
Höf: Gunnar Randversson
Sjötta ljóðabók höfundar. Gunnar yrkir hér í
minningu barnabarnsins Gunnars Unnsteins
Magnússonar sem lést aðeins fjögurra ára gamall.
44 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL RAF
Í belg og biðu
Spjallbók
Höf: Sveinn Einarsson
Enn bregður höfundur á leik í nýrri spjallbók með
örsögum, ljóðum og minningaleiftrum frá langri og
viðburðaríkri ævi. Hann rabbar við lesendur í þeim
stíl sem kallaður hefur verið causeries á útlensku
jafnframt því að mæla fram gömul og ný ljóð.
146 bls.
Ormstunga
IB
Jarðtengd norðurljós
Höf: Þórarinn Eldjárn
Jarðtengd norðurljós er ljóðabók sem skiptist
í tvo hluta, Frumbók og Náttbók, og geymir
nær 70 ný ljóð af ýmsu tagi, laus og bundin,
auk prósaljóða. Þetta er fimmtánda ljóðabók
Þórarins ætluð fullorðnum lesendum. Efnistök
eru margvísleg og yrkisefnin fjölbreytileg, allt frá
drónum til Þorgeirsbola og flest þar á milli.
89 bls.
Gullbringa
IB
Limruveislan
Ritstj: Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Limruveislan er safn af snjöllum og fyndnum
limrum sem flestar hafa orðið til á síðustu árum.
Margar birtast hér í fyrsta sinn. Sannkölluð
veisla fyrir limruunnendur. Að auki eru 30
bestu limrur allra tíma í bókinni. Ritstjóri
bókarinnar er Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
178 bls.
Almenna bókafélagið
KIL
Hlér
Höf: Hrafn Andrés Harðarson
Náttúra, maður og mannshugur hafa verið yrkisefni
Hrafns Andrésar og ráðið miklu um svip ljóða
hans. Í þeim er líf af ætt óróans, jafnt í gleði sem
sorg. Undiralda ljóðaflokksins Hlés er harmur og
þungbær reynsla en ljóðin eru einlæg úrvinnsla
föður sem missti son sinn barnungan. Ljóðin bera
vitni um mikla ást, missi og lífskraft minninga.
54 bls.
Nýhöfn
KIL
Horfumst í augu
Höf: Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Ljóðin í þessari áhrifamiklu bók orti höfundur í
minningu eiginmanns síns, Einars Eyjólfssonar
(1956–2015). Þau eru hjálpartæki höfundar til
að syrgja og leið til að skilja söguna og bæta lífið.
Þetta er önnur ljóðabók Sigrúnar Ásu sem sendi
frá sér bókina Siffon og damask árið 2018.
62 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Hóras prins af Hákoti
Höf: Jón Erlendsson
Uppgjafabóndinn Hóras gerist róni í Reykjavík á
sjöunda áratug 20. aldar. Hann kemur víða við sögu,
er um tíma formaður 17. júní nefndar borgarinnar
og síðar forsætisráðherra – en stefnumálin eru
vafasöm og sögulok ill. Drepfyndinn harmleikur í
bundnu máli, ortur af galsafenginni ófyrirleitni sem
kankast á við klassískan skáldskap fyrri alda.
136 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Hreinsunareldur
Höf: Steindór Jóhann Erlingsson
Steindór Jóhann Erlingsson er vísindasagnfræðingur.
Hreinsunareldur er fyrsta ljóðabók hans en árið
2023 kom út eftir hann Lífið er staður þar sem
bannað er að lifa – Bók um geðröskun og von.
100 bls.
Veröld
KIL
Hugurinn á sín heimalönd
Höf: Rúnar Kristjánsson
Háttbundin ljóð þar sem yrkisefnin eru fjölbreytt.
Hér er bæði að finna kveðjur til samtíðarmanna
og kvæði þar sem minnst er löngu genginna
afreksmanna sögunnar, kvenna og karla, innlendra
og erlendra. Áttunda bók höfundar.
195 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 53GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Ljóð