Bókatíðindi - nov. 2025, Side 59

Bókatíðindi - nov. 2025, Side 59
IB Mamma og ég Myndir og minningar Höf: Kolbeinn Þorsteinsson Saga mæðginanna Kolbeins Þorsteinssonar og Ástu Sigurðardóttur rithöfundar. Ásta var þjóðþekkt sem rithöfundur og nánast goðsögn vegna skrifa sinna. Einkalíf hennar var þó enginn dans á rósum. Ásta glímdi við óreglu lengst af ævi sinnar og barðist við þá djöfla sem fylgdu f íkninni. Börn hennar voru tekin af henni og send í fóstur. 208 bls. Góður punktur IB Margrét Lára Ástríða fyrir leiknum Höf: Bjarni Helgason og Margrét Lára Viðarsdóttir Margrét Lára Viðarsdóttir er meðal fremstu íþróttamanna sem Ísland hefur alið. Hún er markahæsti landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu frá upphafi og spilaði í sterkustu deildum heims. Hér segir Margrét Lára sögu sína og deilir reynslu sinni og góðum ráðum. Hún gerir ferilinn upp og segir á einlægan hátt frá sigrum og mótlæti. 312 bls. Salka KIL Með minnið á heilanum Frásagnir úr fjarlægum bernskuheimi Höf: Þórhildur Ólafsdóttir Hvernig sér lítil sveitastelpa á árunum kringum 1960 veröld sína? Í þessari bók leyfir Þórhildur Ólafsdóttir, rithöfundur og þýðandi, barninu sem hún var að fá orðið, segja frá fólki, dýrum, húsum og náttúru í fjarlægum heimi. Barnið horfir á, drekkur í sig myndir, atburði, orð og sögur sem móta það fyrir lífstíð. 160 bls. Ugla KIL Morðin í Dillonshúsi Örlagasaga mæðgnanna Sigríðar Ögmundsdóttur og Huldu Karenar Larsen Höf: Sigríður Dúa Goldsworthy Storytel-verðlaunin 2025. Fyrir 70 árum gerðist hræðilegur harmleikur í Dillonshúsi við Suðurgötu 2 í Reykjavík. Að morgni 26. febrúar 1953 gaf heimilisfaðirinn eiginkonu sinni og þremur ungum börnum þeirra eitur og svipti svo sjálfan sig lífi. Í þessari bók er rakin saga þeirra sem við sögu komu. Áhrifamikil fjölskyldusaga. 285 bls. Ugla KIL RAF Í belg og biðu Spjallbók Höf: Sveinn Einarsson Enn bregður höfundur á leik í nýrri spjallbók með örsögum, ljóðum og minningaleiftrum frá langri og viðburðaríkri ævi. Hann rabbar við lesendur í þeim stíl sem kallaður hefur verið causeries á útlensku jafnframt því að mæla fram gömul og ný ljóð. 146 bls. Ormstunga KIL Kona verður orðlaus Lygilega sönn reynslusaga Höf: Birna G. Konráðsdóttir Lygilega sönn reynslusaga um málóða konu sem varð „orðlaus“ bæði vegna krabbameins í barka, sem og samskipta við íslenska heilbrigðiskerfið. Bókin er raunsæ, en jafnframt ærslafull ádeila með skáldlegu ívafi. Opinská frásögn um einstaka seiglu í andstreyminu sem vekur lesanda til umhugsunar um hið dýrmæta fjöregg sem líf okkar allra er. 312 bls. Huldar textasmiðja IB Kormákseðli þjóðskáldsins Höf: Friðrik G. Olgeirsson Í ævisögu Davíðs Stefánssonar, Snert hörpu mína, sem út kom árið 2007 er lítið fjallað um náin samskipti hans við konur. Davíð var fámáll um einkalíf sitt og lengst af hefur lítið verið vitað með vissu um samskipti skáldsins við hitt kynið. Margt hefur þó verið sagt og skrifað um ástarmál Davíðs, oftar en ekki byggt á hæpnum forsendum. Skrudda IB Lífsins ferðalag Höf: Wilhelm Wessman Höfundur á að baki litríkan atvinnuferil hér á landi og erlendis. Hann var m.a. hótelstjóri á Hótel Sögu og Holiday Inn í Reykjavík og starfaði síðan lengi sem hótelráðgjafi víða erlendis, m.a. í Simbabve, Úkraínu og Rússlandi. Frásögn Wilhelms veitir fágæta innsýn í þróun hótelreksturs, veitingaþjónustu og ferðamennsku á Íslandi og erlendis. 176 bls. Skrudda B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 59GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Ævisögur og endurminningar Við erum sérfræðingar í prentun bóka og bjóðum upp á Svansvottaða framleiðslu Kiljur og harðspjaldabækur Lyngháls 1, 110 Rvk 5 600 600 Gagnheiði 17, 800 Selfoss 482 1944 Glerárgötu 28, 600 Akureyri 4 600 700 prentmetoddi.is

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.