Bókatíðindi - nov. 2025, Side 60
IB
Saga Eymundar og Halldóru í Dilksnesi
1. bindi: Samfélagið sunnan jökla 1840-1902
Höf: Gísli Sverrir Árnason
Eymundur og Halldóra í Dilksnesi brutust til efna
og mannvirðinga í allsleysi 19. aldar, þau eignast
16 börn og koma víða við í atvinnu og menningu.
Hann var smiður, hafnsögumaður, læknir og skáld.
Erfiðleikar í bland við frelsisþrá leiða fjölskylduna
til Vesturheims 1902 en fimm árum síðar koma þau
aftur heim í Hornafjörð og búa þar til æviloka.
1792 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Séra Bragi - ævisaga
Höf: Hrannar Bragi Eyjólfsson
Ævisaga séra Braga Friðrikssonar er stórbrotin saga
brautryðjanda og hugsjónamanns. Hann fæddist
við erfiðar aðstæður, gekk í gegnum djúpar raunir
en varð einn fremsti maður þjóðkirkjunnar, fyrsti
heiðursborgari Garðabæjar og var kallaður „faðir
Garðabæjar“. Innblásin og áhrifarík frásögn af manni
sem mótaði samfélag sitt og helgaði líf sitt Guði.
652 bls.
Sögufélag Garðabæjar
KIL
Sjálfsævisaga Klemensar Jónssonar
Höf: Klemens Jónsson
Ritstj: Anna Agnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir
Sjálfsævisaga Klemensar lýsir atburðarás sem hann
lifði sjálfur og er rituð frá hans sjónarhorni. Stóran
hluta ævinnar stóð hann á miðju leiksviði sögu
Íslands. Margt af því sem hann tók þátt í telst til
lykilatburða í Íslandssögunni og persónur sem hann
átti í samskiptum við eru ýmsar þjóðkunnar.
310 bls.
Sögufélag
SVK RAF
Og þaðan gengur sveinninn skáld
Samferðamenn, vinir og kollegar minnast Thors
Vilhjálmssonar hundrað ára
Umsj: Guðmundur Andri Thorsson og Örnólfur
Thorsson
Í tilefni þess að öld er liðin frá fæðingu Thors
Vilhjálmssonar, eins frumlegasta höfundar okkar,
minnast samferðamenn, vinir og kollegar hans og
varpa ljósi á þennan flókna og margbrotna höfund.
Hér birtast stuttar svipmyndir, fræðilegar úttektir,
ljóð og teikningar auk brota úr verkum Thors.
Innleggin eru um 40 og í bókinni er fjöldi mynda.
352 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Óli Gränz
Höf: Guðni Einarsson
Óli Gränz er Eyjapeyi og grallari. Hann missti aleigu
sína í Heymaeyjargosinu, eignaðist sjö börn á átta
árum með fjórum konum, en ástarlíf hans var stundum
umtalað í Eyjum. Hjá honum hefur gleðin alltaf haft
yfirhöndina en stundum hefur þó gefið á bátinn. Hér
segir hann á hispurslausan hátt og skemmtilegan
frá lífshlaupi sínu sem er engu öðru líkt.
315 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Óli Jó
Fótboltasaga
Höf: Ingvi Þór Sæmundsson
Hér segir Ólafur Jóhannesson sögu sína á fádæma
skemmtilegan og beinskeyttan hátt. Uppvöxturinn,
fjölskyldan, leikmannaferillinn í fótbolta og
handbolta, þjálfun í rúma fjóra áratugi, sigrar og
töp, gleði og sorg. Óli hefur upplifað allt sem hægt
er að upplifa í íslenskum fótbolta. Einstök frásögn
sem varpar ljósi á þróun fótboltans í hálfa öld.
264 bls.
Sögur útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort60
Ævisögur og endurminningar
Félagsleg tengsl. leshringir,
bókmenntaviðburðir,
fjölmiðlaumfjallanir
og upplestrar skapa
líflegar umræður
lesenda.